<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T09:57:10Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/32685" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/32685</identifier><datestamp>2020-01-10T15:14:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_2062</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2077</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólrún Ingvadóttir 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sumarliði R. Ísleifsson 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hannes Ottósson 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þetta verkefni er þrjátíu eininga lokaverkefni mitt í Hagnýtri menningarmiðlun. Hér mun ég fjalla um Huliðsgám (Liminal World) sem er sýningarrými inni í fjörtíu feta gámi með nýjustu tækni í blönduðum veruleika (e.mixed reality). Huliðsgámur er í eigu Jaðarmiðlunar ehf, sem er lítið nýsköpunarfyrirtæki sem ég ásamt þremur öðrum konum stofnuðu árið 2016. Jaðarmiðlun fékk styrk frá Tækniþróunarsjóði Rannís til að útbúa  upplifunarsýningu inni í gámi með því markmiði að prófa nýja tækni inni í sýningarrými. Sýningin felur í sér fimm mínútna senu þar sem landvætturinn Rispa býður þér inn í hellinn sinn en hrafninn hennar Flóki er glysgjarn og hrekkjóttur og þarf því að fylgjast vel með því hvað hann gerir. Hér mun ég fjalla um fyrstu notendaprófanir á upplifun fólks sem fór í gegnum sýninguna. Allir þátttakendur þurfa að setja á sig búnað: Magic Leap One gleraugu sem gefur þeim sýn í veröld Rispu. Síðan voru allir látnir svara spurningalista um hvernig upplifun þeirra hefði verið með það að markmiði meðal annars að fá fram hvort frásögn (e.storytelling) hefði haft áhrif á upplifunina. Þátttakendum var því skipt í tvo hópa þar sem annar hópurinn fékk frásögn um senuna inni í Huliðsgám, áður en þau hittu landvættinn Rispu og hrafninn Flóka, en hinn hópurinn fékk ekki neinar upplýsingar og vissu því ekki hvað þau ættu von á að sjá og upplifa. Spurningarnar snéru m.a. að sýningarrýminu og karakternum Rispu til að fá viðbrögð við hvort upplifunin virðist vera raunveruleg og trúverðug og í samhengi við sanngildi (e.authenticity). Í fræðilegum hluta verkefnisins er farið yfir helstu hugtök og fjallað um menningararf, sanngildi og velt uppi spurningum hvort tæknin í blönduðum veruleika sé að rekast saman við upplifunina. Einnig hvort trúverðug og vönduð framsetning frekar en sannleikur sé aðalatriði. Niðurstöður úr notendaprófunum sýndu fram á að sýningin í heild sinni vakti góð viðbrögð en þó eru nokkur atriði sem þarft er að laga og þá sérstaklega er kemur að tæknibúnaði. Upplifun í heild sinni vakti lukku þrátt fyrir smá tæknilega örðugleika sem vel er hægt að greiða úr áður en Huliðsgámur verður opnaður fyrir almenning. Rannsóknarspurningar eru:&#xd;
&#xd;
1) Hvaða kosti hefur blandaður veruleiki við miðlun á sýningum?&#xd;
2) Hvaða áhrif hefur tæknin (blandaður veruleiki) á upplifun sýningargesta?&#xd;
3) Hvernig nýtist miðlunarleiðin við að kynna íslenskan menningararf, vel eða illa? &#xd;
         Hefur hún jákvæð eða neikvæð áhrif á sanngildi sagnanna sem unnið er með?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2019-05-06T12:16:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2019-05-06T12:16:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2019-05-06T12:16:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2019-05-06T12:12:02Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2019-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/32685</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarmiðlun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sýndarveruleiki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sýningarhönnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningararfur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Huliðsgámur, sýn í annan heim: Notendaprófanir í sýningargerð með blönduðum veruleika</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>