<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T12:13:09Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/32921" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/32921</identifier><datestamp>2019-09-13T13:43:25Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Klara Lind Þorsteinsdóttir 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gylfi Dalmann Aðalsteinsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vinnustaðamenning skipulagsheilda getur haft mikil áhrif á starfsemi, árangur og frammistöðu starfsmanna. Vinnustaðamenning er jafnframt mjög flókið fyrirbæri þar sem hún er óáþreifanleg og oft samspil nokkurra þátta eins og sögu, gilda, hefða, hetja og menningarneta starfsfólks.&#xd;
Markmið rannsóknarinnar var að skoða vinnustaðamenningu skrifstofa Reykjavíkurborgar og meta styrkleika og veikleika hennar. Einnig var kannað hvort mælanlegur munur væri á vinnustaðamenningu eftir starfsaldri, hvort starfsmenn hefðu tekið þátt í styttingu vinnuviku eða hefðu mannaforráð. &#xd;
Rafrænn spurningalisti byggður á Denison-líkaninu var lagður fyrir starfsmenn í ágúst 2018 en alls svöruðu 174 honum. Spurningalistinn mælir styrkleika fjögurra menningarvídda og er ætlað að sýna fram á tengsl milli menningareinkenna og árangurs. Menningarvíddirnar fjórar eru aðlögunarhæfni, hlutverk og stefna, þátttaka og aðild og samkvæmni og stöðugleiki. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að vinnustaðamenning skrifstofa Reykjavíkurborgar sé veik þar sem allar víddirnar fjórar eru á aðgerðabili. Helstu styrkleikar hennar eru að starfsmenn upplifa sig sem hluta af teymi, frelsi til ákvarðanatöku virðist vera nokkuð og þeir finna til ábyrgðar. Áhersla virðist vera á þróun mannauðs og hæfni starfsmanna og þeir virðast hafa mikinn skilning á stefnu skipulagsheildarinnar.&#xd;
Veikleikarnir felast í viðhorfum til markmiðasetningar og framtíðarsýn Reykjavíkurborgar ásamt því að ólík svið og skrifstofur virðast ekki vinna nægilega vel saman sem getur verið hamlandi fyrir árangur skipulagsheildarinnar. Skipulagsheildin virðist einnig vera í nokkurri andstöðu við breytingar. Leggja mætti aukna áherslu á samvinnu milli sviða og skrifstofa ásamt því að hvetja starfsmenn til að koma auga á breytingar og aðlagast nýjum venjum. Þrátt fyrir að einkunnir mælist allar á aðgerðabili og úrbóta sé þörf þá á skipulagsheildin ekki langt í land með að komast á starfhæft bil varðandi yfirvíddirnar til þess að efla árangur sinn.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Viðskiptafræðideild hefur samþykkt lokaðan aðgang að þessari ritgerð í þrjú ár.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2019-05-13T10:53:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2019-05-13T10:53:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2019-05-13T10:53:24Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2019-05-13T10:39:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2019-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/32921</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannauðsstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vinnustaðamenning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Reykjavíkurborg</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Vinnustaðamenning á skrifstofum Reykjavíkurborgar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>