<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T14:22:47Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/33479" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/33479</identifier><datestamp>2025-09-10T13:06:04Z</datestamp><setSpec>com_1946_26415</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_26416</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Heiða Ösp Sturludóttir 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Birna Kristín Baldursdóttir 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Hallsteinn Hallsson 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Íslenska geitin (Capra aegagrus hircus) er talin hafa borist til landsins um árið 870 með landnámsmönnum frá Skandinavíu og Bretlandseyjum. Álitið er að íslenski geitfjárstofninn hafi verið án innblöndunar í um 1100 ár og að stofninn hafi sennilega aldrei verið stór. Fyrstu tölur sem birtar voru um geitfjárfjölda á Íslandi var árið 1703. Frá því ári voru geitur ekki mikið taldar fram sérstaklega og í þau fáu skipti fyrir aldamótin 1900 sem geitfjárfjöldinn var gefinn upp voru það ekki áreiðanlegar tölur. Um og eftir aldamót 1900 fóru talningar að verða meira áreiðanlegri. Mikil sveifla varð á stofnstærðinni á 20. öld þar sem geitunum fjölgaði gríðarlega mikið fyrstu þrjá áratugina. Fjöldinn náði hámarki árið 1930 en upp úr því fækkaði geitum óhugnalega hratt og fór fjöldinn niður fyrir 100 gripi á árunum 1957 til 1965. Síðan hefur fjölgað í stofninum og í lok ársins 2018 taldi stofninn 1491 geit á vetrarfóðrun. Geitur hafa verið til í öllum sýslum landsins en þó ekki á sama tíma. Flestar hafa verið geitur í 18 sýslum í einu. Í Þingeyjarsýslum hafa geitur verið flestar lengst af á 20. öld, þá sérstaklega í Suður-Þingeyjarsýslu. Í dag eru geiturnar flestar í Mýrasýslu, en sú sýsla var aldrei geitmörg fyrr en rétt upp úr aldamótum 2000. Barðastrandar- og Ísafjarðarsýslur hafa verið geitalausar síðan árið 1960 og ekki er hægt að flytja þangað geitur vegna smitvarnahólfa. Stofninn er mikið ræktaður í smáum hópum og því er óhjákvæmilegt að komast hjá skyldleikaræktun og er hún orðin mjög mikil og erfðafjölbreytileiki farinn að minnka mikið. Það hefur neikvæð áhrif á stofnstærðina og aðlögunarhæfileika til að aðlagast nýjum aðstæðum. Mikilvægt er að koma í veg fyrir að erfðafjölbreytileikinn minnki meira.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2019-06-04T14:23:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2019-06-04T14:23:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2019-06-04T14:23:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2019-06-04T14:23:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2019-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/33479</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geitahald</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geitabæir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geitfjárstofn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenska geitin</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Þróun geitahalds á Íslandi byggt á upplýsingum úr búnaðar- og forðagæsluskýrslum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>