<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-18T23:30:36Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/33490" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/33490</identifier><datestamp>2025-10-29T14:54:46Z</datestamp><setSpec>com_1946_26415</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_26416</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólveig Arna Einarsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Björnsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Landsmót hestamanna eru haldin annað hvert ár á Íslandi og er stærsti hestaviðburður landsins.&#xd;
Þar fara bæði fram gæðingakeppni, töltkeppni og kynbótasýningar. Samkvæmt reglugerð um velferð hrossa er mótshaldara skylt að láta fara fram heilbrigðisskoðun á öllum hrossum sem koma fram á mótinu samkvæmt reglum Matvælastofnunar sem ganga undir heitinu Klár í keppni. Niðurstöður heilbrigðisskoðana keppnishrossa frá árinu 2012 sýndu að tíðni þrýstingsáverka í munni hrossa var alvarlegt vandamál og ógn við velferð keppnihrossa. Sýnt&#xd;
var fram á sterk tengsl á milli áverka á kjálkabeini, sem oft voru metnir sem alvarlegir, og notkunar á stangamélum með tunguboga. Lagt var bann við notkun slíkra méla árið 2014.&#xd;
Þessi rannsókn er byggð á eftirlitsgögnum Matvælastofnunar frá LM 2018 og gögnum frá mótshaldara sama móts um beislisbúað.&#xd;
Markmið verkefnisins var að lýsa tíðni þrýstingsáverka í munni keppnishrossa sem kepptu í A-flokki, B-flokki og ungmennaflokki gæðingakeppninnar á Landsmóti hestamanna 2018 og greina mögulega áhættuþætti. Upplýsingar um beislisbúnað sem riðið var við í&#xd;
forkeppni og skoðun á munni hestanna fyrir milliriðil, voru lagðar til grundvallar.&#xd;
Rúmur helmingur hrossanna (n=52) eða um 56%, voru með áverka í munni, sem í langflestum tilfellum voru metnir sem vægir. Um helmingi hrossanna (n=49), 53%, hafði verið riðið við einhverskonar hringamél, af þeim voru 59% með skráða áverka, þar af 32% í munnvikum/kinnum og 27% á kjálkabeini. Heldur minna var um áverka hjá hrossum sem hafði verið riðið við stangir (n=42), 53%, einkum í munnvikum/kinnum (23%) en hærra hlutfall á&#xd;
kjálkabeini (30%). Ekki varð séð að gerð reiðmúla hefði áhrif á tíðni þrýstingsáverka í munni en flestum hestum var riðið við nasamúl/þýskan múl.&#xd;
Niðurstöðurnar benda til þess að tíðni alvarlegra þrýstingsáverka á kjálkabeini hafi minnkað til muna eftir að stangamél með tunguboga voru bönnuð í keppni, en tíðni vægari&#xd;
áverka hafi lítið breyst.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2019-06-04T15:34:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2019-06-04T15:34:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2019-06-04T15:34:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2019-06-04T15:34:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2019-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/33490</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dýravelferð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þrýstingsáverkar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Beisli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kjálkabein</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Munnvik</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tungubogi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hringamél</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stangamél</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tíðni þrýstingsáverka í munni keppnishrossa á LM 2018 og tengsl við mögulega áhættuþætti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>