<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T01:23:49Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/3436" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/3436</identifier><datestamp>2018-10-15T15:55:20Z</datestamp><setSpec>com_1946_2064</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2070</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Lilja Stefánsdóttir 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðrún Marteinsdóttir 1955-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Hlýnandi loftslag undanfarinna ára hefur valdið breytingum á útbreiðslu&#xd;
fiskitegunda á norðurhveli jarðar. Ólík svörun tegunda við hækkandi hita getur leitt&#xd;
til breytinga á samfélagsgerð og staðbundnum tegundafjölda. Í kjölfar breytinga á&#xd;
sjávarhita hafa verið skráðar breytingar á stofnstærð og útbreiðslu nokkurra&#xd;
fiskitegunda á Íslandsmiðum. Markmið þessarar rannsóknar voru að kanna&#xd;
breytingar á útbreiðslu, fjölbreytileika og samfélagsgerð botnfiska á Íslandsmiðum á&#xd;
hlýnunarskeiði og hvaða umhverfisþættir ráða þeim.&#xd;
Í rannsókninni voru notuð gögn Hafrannsóknastofnunarinnar úr árlegum (1996-&#xd;
2007) stofnmælingum botnfiska að hausti (október). Í stofnmælingunni eru sömu&#xd;
stöðvar endurteknar ár hvert. Klasagreining (hierarchical cluster analysis) var notuð&#xd;
til að skilgreina samfélög fiska á tveimur tímabilum og fjölþáttagreiningin CCA&#xd;
(canonical correspondence analysis) til að kanna tengsl milli samfélaga og hitastigs,&#xd;
dýpis, breiddar- og lengdargráðu og ára. Einnig voru notaðir tveir&#xd;
fjölbreytileikastuðlar; fjöldi tegunda og Shannon index. Tengsl fjölbreytileika og&#xd;
hitastigs, dýpis, frumframleiðslu, staðsetningar og ára voru könnuð með GAM&#xd;
líkönum (generalized additive models).&#xd;
Fjögur meginsamfélög með útbreiðslu í suðvestur-djúpi, norður-djúpi, suður&#xd;
landgrunni og með víða útbreiðslu á landgrunni voru greind með klasagreiningu.&#xd;
Samfélög í köldum sjó djúpt norður af landinu voru óbreytt á rannsóknartímanum, en&#xd;
samfélagsgerð tegunda í breytilegri hlýsjó yfir landgrunninu sýndu meiri breytingar á&#xd;
sama tímabili. Fjölþáttagreining sýndi líka fram á aukið vægi hlýsjávartegunda á&#xd;
þessu hlýnunarskeiði. Í ljós kom að fjölbreytileiki var mismunandi eftir árum og&#xd;
staðsetningu, auk þess sem hann breyttist með dýpi og hitastigi. Tegundafjöldi jókst&#xd;
með hitastigi og tíma suður og vestur af landinu, en minnkaði fyrir norðan og austan&#xd;
land. Á sumum svæðum þar sem fjöldi tegunda var mikill var Shannon index lágur.&#xd;
Þetta gefur til kynna að þrátt fyrir að margar tegundir séu á þessum svæðum, þá er&#xd;
einstaklingsfjöldi flestra þeirra lítill.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-08-12T16:46:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-08-12T16:46:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2008-10-12T16:46:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/3436</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">en</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líffræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Botnfiskar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fiskifræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Loftslagsbreytingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fiskistofnar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslandsmið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Groundfish species diversity and assemblage structure in Icelandic waters during a period of rapid warming (1996-2007)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" qualifier="alternative" lang="is">Fjölbreytileiki og samfélagsgerð botnfiska á Íslandsmiðum á árunum 1996-2007</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>