<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T16:27:01Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/35343" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/35343</identifier><datestamp>2020-05-18T09:48:42Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Eggert Georgsson 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ragnheiður Bragadóttir 1956-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Umræða um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka hefur ekki verið sérstaklega áberandi á Íslandi síðustu ár en haustið 2019 náði hún eflaust ákveðnum hápunkti, en þá var Ísland sett á hinn svokallaða gráa lista alþjóðlega starfshópsins The Financial Action Task Force.&#xd;
Í þessari ritgerð er fjallað um lög nr. 140/2018 um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sem tóku gildi 1. janúar 2019. Ritgerðin hefst á almennri umfjöllun um peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka, hver voru fyrstu skref sem tekin voru úti í heimi í þeirri baráttu og hvernig innleiðingu reglna um efnið hefur verið háttað hér á landi. Stuttlega verður fjallað um fjórðu peningaþvættistilskipun Evrópusambandsins, sem lög nr. 140/2018 byggja á að mestu, og alþjóðlega starfshópinn FATF, ásamt helstu athugasemdum sem hann gerði við stöðu mála á Íslandi og hvernig brugðist hefur verið við þeim hér. Fjallað verður um innleiðingu tilskipunarinnar í Danmörku og Noregi og farið yfir það helsta sem er ólíkt þar, í samanburði við lög nr. 140/2018. Stuttlega verður fjallað um hlutverk ríkisskattstjóra samkvæmt lögunum. Því næst er komið að meginefni ritgerðarinnar, þvingunarúrræði og viðurlög samkvæmt XII. kafla laganna. Í XII. kafla laganna er að finna heimildir eftirlitsaðila samkvæmt lögunum til að krefjast úrbóta, leggja á dagsektir og stjórnvaldssektir, ljúka málum með sátt, víkja frá stjórn og framkvæmdastjóra tilkynningarskyldra aðila og afturkalla starfsleyfi. Í XII. kafla eru einnig ákvæði sem vernda rétt manna til að fella ekki á sig sök, opinbera birtingu viðurlaga af hálfu eftirlitsaðila og málshöfðunarfrest aðila sem vilja ekki una ákvörðun aðila. Farið verður ítarlega yfir ákvæði XII. kafla og gerð grein fyrir hvað í þeim felst, hvaða spurningar og álitaefni vakna þegar ákvæðin eru skoðuð, og hvaða þýðingu þau geta haft, ef til þess kemur að á þau muni reyna við framkvæmd laganna og hvort ákvæðin feli í sér fullnægjandi innleiðingu á fjórðu peningaþvættistilskipuninni. Að lokum verður farið yfir helstu niðurstöður og hvaða breytingar á lögunum eru æskilegar, að mati höfundar, en telja verður tilefni til að ýmis atriði í ákvæðum XII. kafla verði tekin til skoðunar, þó vissulega séu þau misjafnlega brýn.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2020-05-18T09:48:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2020-05-18T09:48:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2020-05-18T09:48:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2020-05-17T23:44:45Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2020-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/35343</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka: Þvingunarúrræði og viðurlög samkvæmt lögum nr. 140/2018</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>