<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T08:08:57Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/36042" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/36042</identifier><datestamp>2025-09-10T13:04:53Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þórunn Dís Þórunnardóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kristbjörg Sara Thorarensen 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Birna Kristín Baldursdóttir 1960-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Kjúklingaframleiðsla er hvað mest vaxandi landbúnaðargreinin í heiminum. Með vaxandi eftirspurn eftir alifuglakjöti er valið fyrir einstaklingum fugla sem hafa mikinn vaxtarhraða. Með vali á fuglum sem eru hagkvæmir í framleiðslu á kjúklingakjöti eykur það líkurnar á hegðunar- og lífeðlisfræðilegum vandamálum í eldinu. Einnig verða fuglarnir viðkvæmari fyrir ýmsum sjúkdómum sem geta komið illa niður á holdakjúklingum í eldi. Sá hænsnastofn sem notaður er í dag við ræktun holdakjúklinga á Íslandi er Ross 308 og stofnarnir Lohmann LSL og Lohmann LB eru notaðir sem varphænustofnar.&#xd;
Hérlendis hafa nokkrir sjúkdómar skotið upp kollinum í kjúklingaeldi í gegnum árin þrátt fyrir að Ísland hafi einstaka sjúkdómsstöðu í húsdýrum. Þeir sjúkdómar sem komið hafa upp eru: kjúklingasótt (e. pullorum disease – Salmonella pullorum), hníslasótt (Coccidiosis – Eimeria spp.), Salmonella (S. Enteritidis og S. Typhimurium), kampýlóbakter (e. campylobacter), hænsnalömun (e. Marek‘s disease). Þeir nýjustu á þessum lista eru innlyksa lifrarbólga (e. inclusion body hepatitis) og smitandi sjúkdómur í búrsu (e. infectious bursal disease) (IBD).&#xd;
Þann 23. ágúst 2019 tilkynnti Matvælastofnun tilfelli á tveimur sjúkdómum í kjúklingum á Jarlsstöðum í Landsveit sem ekki höfðu áður valdið vandræðum í kjúklingaeldi hér á landi. Um var að ræða veirusjúkdóma; smitandi sjúkdóm í búrsu (e. infectious bursal disease - IBD) og innlyksa lifrarbólgu (e. inclusion body hepatitis – IBH). Þekkt er erlendis að þegar innlyksa lifrarbólga kemur upp í fuglahópi er smitandi sjúkdómur í búrsu undirliggjandi vandamál.&#xd;
Matvælastofnun fór því af stað með aðgerðaráætlun samkvæmt lögum um dýrasjúkdóma og varnir gegn þeim nr. 25/1993 til að uppræta sjúkdóminn. Hún fól í sér þrif á eldishúsum, sótthreinsun, hvíld á húsum og að lokum bólusetning á öllum fuglum sem færu í húsin.&#xd;
Blóðvatnssýni voru tekin úr bólusettum ungum til að sjá hvort að aðgerðir Matvælastofnunar hafi borið árangur í að útrýma veirunni hér á landi. Niðurstöður voru afgerandi; engir fuglar sem settir voru í húsin eftir þrif, sótthreinsun og bólusetningu unga smituðust af IBD-veiru.&#xd;
Virðist sem að aðgerðaráætlun Matvælastofnunar hafi borið erindi sem erfiði.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2020-06-10T15:34:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2020-06-10T15:34:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2020-06-10T15:34:50Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2020-06-10T15:34:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2020-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/36042</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Alifuglarækt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hænsni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búrsa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Smitsjúkdómar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gumboro</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">IBD-veira</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Sjúkdómar í kjúklingaeldi á Íslandi með áherslu á smitandi sjúkdóm í búrsu (Gumboroveiki)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>