<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T08:26:43Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/36043" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/36043</identifier><datestamp>2025-09-10T12:22:39Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hallur S Björgvinsson 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Bjarni D. Sigurðsson 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Einar Sveinbjörnsson 1965-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vindur getur haft mikil áhrif vöxt og þroska trjáa og annars gróðurs, bæði með beinu áreiti á plöntuvefi og í gegn um þau áhrif sem hann hefur á aðra nærviðrisþætti, eins og lofthita, jarðvegshita, yfirborðshita plantna, rakastig, o.fl. Lítið hefur verið birt hérlendis af niðurstöðum mælinga á samverkandi áhrifum vinds og hita og plöntuvaxtar. Rannsóknaverkefni um þessa þætti var sett upp í Fljótshlíð, Rangárvallasýslu, sumarið 2016.&#xd;
Markmið verkefnisins var að skoða samspil vindhraða og hitastigs og plöntuvaxtar, með því að mæla vindhraða, hitastig í 10 og 200 cm hæð og í jarðvegi yfir eitt vaxtartímabil, sem og vöxt ungra birkiplantna sem gróðursettar voru í staðlaðan jarðveg á þremur mismikið skýldum meðferðastöðum innan afmarkaðs svæðis með sama veðurfari. Svæði 1 var á óskýldum berangri (viðmið), Svæði 2 var með skjólbeltum á tvær hliðar (norður og vestur en opið til austurs- og suðurs), og Svæði 3 var í mjög miklu skjóli innan þétts skjólbeltakerfis. Til að meta bein áhrif vindslits fór einnig fram samanburður á mælingu slitflagga á sömu stöðum en yfir lengra tímabil.&#xd;
Skjólmeðferðirnar drógu martækt úr meðal- og hámarksvindhraða (t-próf: p&lt;0,001) á skýldum stöðum miðað við berangur. Meðaltöl hitastigs yfir rannsóknatímabilið voru einnig marktækt hærri á skýldu svæðunum en á óskýldu svæði (t-próf: p&lt;0,01). Dagshiti í 200 cm hæð var 0,6 °C hærri í miklu skjóli en á berangi, en 1,6 °C hærri í 10 cm hæð frá yfirborði, og 1,1 °C hærri á 10 cm dýpi í jarðvegi.&#xd;
Laufflatarmál (LA) birkisins að hausti var orðið marktækt meira (t-próf: p&lt;0,001) á báðum skýldu svæðunum miðað við óskýlda svæðið, eða 1,8 sinnum meira (81,7%) á svæði Svæði 2 og 2,2 sinnum meira (123,4%) á svæði Svæði 3 miðað við Svæði 1. Mæling á lífmassa birkiplantna á meðferðasvæðunum þremur sýndi jafnframt að skjólið hafði aukið vöxtinn marktækt (t-próf, p&lt;0,001) á báðum skýldu svæðunum miðað við Svæði 1. Lífmassi í sumarlok vað að jafnaði 71,8% meiri á svæði Svæði 2 og 78,5% meiri á svæði Svæði 3 miðað við svæði Svæði 1. Einnig var hlutfallslega meira af heildarlífmassa trjánna varið til rótarvaxtar á skjóllausu á berangri en á skýldum svæðum sem gerði muninn í ofanjarðarvexti birkisins enn meiri en þegar heildarlífmassi var borinn saman.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2020-06-10T15:39:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2020-06-10T15:39:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2020-06-10T15:39:42Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2020-06-10T15:39:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2002-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/36043</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hitafar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Nærveður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skjólbelti</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vindur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vaxtargreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif skjóls á trjávöxt og nærviðri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>