<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T13:17:58Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/3661" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/3661</identifier><datestamp>2018-10-15T09:34:09Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Anna María Malmquist 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Reynir Kristjánsson 1945-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Aðferðir til að auka gæði þjónustu og lækka kostnað eru veigamikill þáttur í stjórnun&#xd;
sjúkrahúsa. Lean, ein tegund gæðastjórnunar, hefur mætt þessum þáttum á sjúkrahúsum&#xd;
víðsvegar um heim. Grundvallaratriði Lean er fyrirtækjamenning þar sem vinna er skoðuð&#xd;
beint, sóun er útrýmt kerfisbundið, vinna er stöðluð, vandamál eru leyst á kerfisbundin hátt&#xd;
og fyrirtæki eru gerð að lærdómsfyrirtæki. Fræðilegar rannsóknir á efninu eru ekki margar&#xd;
og engar rannsóknir hafa verið gerðar á Íslandi á því hvaða aðferðir forstjórar sjúkrahúsa&#xd;
nota til auka gæði þjónustunnar og lækka kostnað.&#xd;
Tilgangur rannsóknarinnar sem hér er lýst var að fá innsýn í stjórnun sjúkrahúsa og dýpka&#xd;
skilning á aðferðum sem auka skilvirkni og gæði þjónustu á sjúkrahúsum. Rannsóknin&#xd;
leitar svara við því hvaða aðferðir stjórnendur á sjúkrahúsum á Íslandi nota og hvernig þær&#xd;
gagnist við að auka gæði þjónustu og lækka kostnað. Ítarlega er fjallað um hvað vinnist&#xd;
með aðferðum Lean á sjúkrahúsum og hvernig hentugt væri að standa að innleiðingu Lean&#xd;
á sjúkrahúsum.&#xd;
Aðferð rannsóknar var eigindleg og byggði á hálfstöðluðum sérfræðiviðtölum. Gögnum&#xd;
var safnað með samtölum við fjóra forstjóra sjúkrahúsa á Íslandi og framkvæmdastjóra yfir&#xd;
stefnumótun og gæðastjórnun á Háskólasjúkrahúsinu í Lundi í Svíþjóð.&#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar birtast í fjórum meginþemum. Fyrsta þemað snýr að forystu,&#xd;
annað að menningu, hið þriðja að stjórnunaraðferðum og fjórða að Alþingi og&#xd;
stefnubreytingum. Forstjórar sjúkrahúsa eru bundnir fjárlögum og tíðum stefnubreytingum&#xd;
í pólitík sem getur torveldað þeim langtíma stefnumörkun. Forstjórar sjúkrahúsa nota&#xd;
blandaðar aðferðir við stjórnun. Þeir nefna Balanced Scorecard, New Public Management&#xd;
og Landspítalamódelið. Viðmælandi frá Háskólasjúkrahúsinu í Lundi talaði um að nota&#xd;
Lean með góðum árangri. Gott upplýsingaflæði, virðing fyrir fólki, skipulögð vinnuferli og&#xd;
endurmenntun voru þættir sem viðmælendur töldu mikilvæga til að auka gæði þjónustu.&#xd;
Rafræn sjúkraskrá, sameiningar, uppsagnir og minni yfirvinna voru meðal þess sem&#xd;
viðmælendur töldu lækka kostnað.&#xd;
Helstu ályktanir sem hægt er að draga af niðurstöðunum eru þær að stjórnendur sjúkrahúsa&#xd;
þurfa að leiða með fordæmi og sýna að menning umbóta nái í efstu stöður. Vísindalegar&#xd;
stjórnunaraðferðir, aðferðir sem hafa þróast í áranna rás og hafa verið slípaðar til, og&#xd;
sannreyndar í fyrirtækjum við góðan orðstír eru stjórnunaraðferðir sem velja ætti í stjórnun&#xd;
sjúkrahúsa, Lean er gott dæmi um slíka aðferð.&#xd;
Lykilhugtök: Lean, umbætur, skilvirkni, gæði, menning, stöðlun, kostnaður, gæðastjórnun.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-09-23T15:14:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-09-23T15:14:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-09-23T15:14:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/3661</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilbrigðisþjónusta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gæðastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Stjórnun sjúkrahúsa : aðferðir til að auka gæði og lækka kostnað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>