<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T06:44:56Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/37690" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/37690</identifier><datestamp>2021-02-24T15:27:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_29723</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_29724</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólveig Ásta Bergvinsdóttir 1995-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þorbjörg Inga Jónsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Það hefur færst í aukana að fólk hér á landi velji frekar að vera í óvígðri sambúð heldur en hjúskap, ástæða þess er ef til vill sú að ungt fólk vill reyna á hvernig er að búa saman áður en það giftir sig, en þetta sambúðarform er einmitt algengast á meðal ungs fólks í dag, og má segja að óvígð sambúð hafi í raun og veru komið í stað hinnar hefðbundnu trúlofunar sem tíðkaðist hér áður fyrr. Svona sambúð veldur sjaldnast lagalegum erfiðleikum en algengast er að fólk slíti annaðhvort sambúð fljótlega eða gangi á endanum í hjónaband.  &#xd;
Þó svo sambúðarformið óvígð sambúð sé alltaf að færast í aukana þá virðist fólk ekki gera sér grein fyrir því að enn er mikill munur á réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð samanborið við einstaklinga í hjúskap. &#xd;
	Megináhersla þessarar ritgerðar er annars vegar réttindi einstaklinga í óvígðri sambúð við fráfall maka og hinsvegar réttindi einstaklinga í óvígðri sambúð við sambúðarslit. Ritgerðinni er skipt í fjóra meginkafla. Að inngangi loknum er gert grein fyrir hugtökunum óvígð sambúð og hjúskapur og leitast er við að skoða réttarstöðu fólks í óvígðri sambúð samanborið við hjúskap. Annar kafli fjallar um erfðarétt eftirlifandi maka í óvígðri sambúð, þ.e. almennt um erfðarétt, hverjir teljast lögerfingjar hins látna og ráðstöfun eigna með erfðaskrá. Í þessum kafla er aðallega stuðst við erfðalögin nr. 8/1962, en um lögarf er fjallað í I. kafla erfðalaga, þar sem finna má tæmandi lista yfir þau tengsl sem aðili þarf að hafa við arfleifanda til að teljast sem lögerfingi hans. Í þriðja kafla verða Hæstaréttar- og Landsréttardómar síðustu áratuga í málum er varða skiptingu eigna við sambúðarslit í óvígðri sambúð skoðaðir og gert grein fyrir þróun dómafordæma slíkra mála síðustu ár. Í fjórða og síðasta kaflanum að lokaorðum undanskildum mun höfundur leitast við að gera grein fyrir þeim breytingum sem orðið hafa í samfélaginu síðustu ár en erfðalögin hafa ekki verið endurskoðuð í heild sinni síðan árið 1962 og því má leiða líkum að því að kominn sé tími á að endurskoða þau, t.d. með tilliti til þess að gæta að réttindum fólks í óvígðri sambúð.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-02-24T15:27:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-02-24T15:27:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-02-24T15:27:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2020-12-12T15:53:52Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/37690</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lokaritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sambúð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hjúskaparstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Réttarstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sambúðarslit</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Réttindi einstaklinga í óvígðri sambúð við fráfall maka eða sambúðarslit</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>