<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T17:22:58Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/37696" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/37696</identifier><datestamp>2025-09-03T14:25:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Swanhild Ylfa K R Leifsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Hallsteinn Hallsson 1976-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Magnus Göransson 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Við fæðuframleiðslu í dag stólum við aðeins á lítinn hluta þeirra plantna sem hægt væri að nýta sem fæðu fyrir fólk og eru þær nytjaplöntur ræktaðar í fáum löndum. Þær hnattrænu breytingar sem eiga sér nú stað munu hafa áhrif á fæðuframleiðslu þessara landa og allar líkur eru á að lönd á Norðurslóðum verði mikilvægari í framtíðinni með tilliti til fæðuframleiðslu. Að sama skapi verður tegunda- og erfðafjölbreytileiki nytjaplantna mikilvægari til að auka fæðuöryggi. Erfðafjölbreytileiki nytjaplantna minnkar hins vegar eftir því sem norðar dregur og mikilvægt að kanna möguleika til þess að breyta því.&#xd;
Með því að skoða ræktunarskilyrði á Íslandi og helstu nytjaplöntur sem þar eru ræktaðar má finna í fyrsta lagi hvaða áskoranir það eru helst sem þarf að yfirstíga til þess að hægt sé að rækta nytjaplöntur til fulls þroska á Íslandi. Í öðru lagi má greina uppruna helstu nytjaplantnanna hérlendis og aðlögun þeirra og þannig finna uppskriftina að velgengni.&#xd;
Á Íslandi er það helst takmörkuð hitasumma og aukin daglengd sem er til trafala við ræktun plantna. Bygg, nepja og kartöflur eru ólíkar plöntur sem hafa verið mislengi í ræktun á Íslandi en eiga það sameiginlegt að tekist hefur með ágætum að rækta og uppskera hérlendis. Uppruni bygg- og nepjuyrkja sem notuð eru hérlendis ásamt uppruna byggyrkja sem prófuð hafa verið er aðallega norrænn en uppruni kartöflunnar óljós en þó sennilega norrænn og/eða mið-evrópskur. Við aðlögun byggyrkja að íslenskum aðstæðum hefur verið notast við kynblöndun yrkja, m.a. á norrænum og skoskum yrkjum til að draga fram heppilega eiginleika beggja. Þessa aðferð mætti nota við nýjar nytjaplöntur á Íslandi eins og t.d. inkakorn þar sem hægt væri að taka norræn yrki og blanda við yrki frá Andesfjöllunum og fá þannig yrki með þol fyrir daglengdinni og lágri hitasummunni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-03-11T13:11:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-03-11T13:11:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-03-11T13:11:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-03-11T13:11:38Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2020-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/37696</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Nytjajurtir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tegundafjölbreytni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Erfðafjölbreytileiki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Norðurslóðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Inkakorn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ræktun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áskoranir og möguleikar í ræktun nýrra nytjaplantna á Íslandi og Norðurslóðum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Challenges and possibilities in crop breeding in Iceland and the Arctic</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>