<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T13:02:12Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/3874" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/3874</identifier><datestamp>2018-10-15T08:52:59Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sesselja Konráðsdóttir 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gauti Sigþórsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Verkefnið er lokað</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Fyrsti kafli ber yfirskriftina Þekkingarhagkerfið, þar sem fjallað er um hugtakið&#xd;
hagnýtingu og hvaða gildi það hefur í samhengi við íslenskt menntakerfi. Spurningum á&#xd;
borð við „getur hagvöxtur alltaf af sér hagsæld?“ eru bornar upp og ólíkar tegundir&#xd;
auðmagns reifaðar, einkum auðmagnstegundakenning Pierre Bourdieu. Í undirkaflanum&#xd;
Hagnýting menntunar, er varpað ljósi á gildi menntunar og hagsmunaárekstra milli&#xd;
einstaklinga og samfélagsheildar.&#xd;
Í öðrum kafla, Kenningar um mannauð, er fjallað um mannauðskenningu Adam&#xd;
Smith og fleiri gagnrýniskenningar á móti henni. Einnig er fjallað um áhrif&#xd;
umframmenntunar mannauðs, á einstaklinga jafnt sem atvinnumarkað auk þess sem&#xd;
fjallað er um lagskiptan vinnumarkað. Í þriðja kaflanum, Menntun og atvinnulíf er rætt&#xd;
um verðmætasköpun þjóða og tilgreindir framleiðsluþættir til verðmætasköpunar.&#xd;
Jafnframt er fjallað um mannauðssköpun, gildi mannauðs og menntunar, þar sem&#xd;
nýsköpun er vaxandi í atvinnulífinu. Ólík sjónarmið eru reifuð um tengsl menntunar við&#xd;
atvinnulíf og fjallað er um ólíkar forsendur atvinnuráðninga og gildi starfsferilsskrár.&#xd;
Hinum ýmsu spurningum er velt upp, samanber „eru störf veitt á réttlátan hátt?“ og&#xd;
„hverju fara atvinnurekendur eftir við val sitt á starfsmönnum?“ Þarna er aftur rætt um&#xd;
hagsmunaárekstra, í þessu tilfelli hagsmuni einstaklinga og atvinnumarkaðs.&#xd;
Fjórði kafli er undir yfirskriftinni Þekkingarsamfélag, þar sem fjallað er um þróun&#xd;
háskólasamfélagsins og markaðsvæðingu háskólanna. Aukið framboð og eftirspurn er á&#xd;
háskólanámi, þar sem sífellt fleiri sjá hag sinn í aukinni menntun. Velt er upp spurningum&#xd;
á borð við „hvert hlutverk og stefnumótun háskóla er“. Að lokum er svo fjallað um&#xd;
stofnanavald og valdbeitingu innan háskólasamfélagsins. Í fimmta kafla, Háskólagreinar,&#xd;
verða rekin áhrif markaðsvæðingar á þróun háskólagreina, sérstaklega er fjallað um&#xd;
þverfagleika og aukin umsvif hans innan háskólans. Menningarfræði og söguleg þróun&#xd;
hennar er í framhaldi af því rakin og hlutverk gagnrýnar og skapandi hugsunar sem hafa&#xd;
fengið sífellt meira vægi.&#xd;
Sjötti kafli ber heitið „Hedónísk fræði“ og fjallar um umbun og refsingu&#xd;
menntakerfisins, þar sem nemendur eru hvattir til að mennta sig til þess að fá&#xd;
viðurkenningu og forðast refsingu. Spurningar á borð við „á hvaða forsendum stundar fólk nám?“ og „hvað einkennir góða kennslu?“ vakna í þeim kafla. Í undirkaflanum&#xd;
„Skemmtinám“ er hugsanlega að finna nýjan vísi að námi, svokölluðu „Skemmtinámi“&#xd;
eða „edu-tainment“. Í framhaldi af því er svo rætt um smekk og námsval, þar sem&#xd;
hugtökin tengjast að talsverðu leyti. Einnig verður spurningum velt upp eins og „Hversu&#xd;
mikið val höfum við?“ og „hvað með allt hitt sem er ekki í boði?“&#xd;
Í sjöunda kafla er sú aðferðafræði kynnt sem beitt var við rannsóknina. Hóp&#xd;
þátttakenda er lýst, jafnt sem framkvæmd og gagnaöflun. Í áttunda kafla er Prismanáminu&#xd;
lýst gaumgæfilega. Hugmyndin að baki Prisma er rakin sem og tildrög námsins. Leitast er&#xd;
við að lýsa aðstæðum, umhverfi, verkefnum og fleiru sem snýr að náminu skilmerkilega.&#xd;
Að lokum er svo gagnagreining á viðtölum og niðurstöður kynntar í lokin</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-10-05T11:42:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-10-05T11:42:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-10-05T11:42:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/3874</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Er háskólamenntun í öllum tilfellum hagnýt fjárfesting : Prismanámið sem tilviksrannsókn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>