<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T15:06:30Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38803" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38803</identifier><datestamp>2025-10-29T11:35:33Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásta Jórunn Smáradóttir 1999-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Karvel L Karvelsson 1971-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigtryggur Veigar Herbertsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Svín eru með þeim fyrstu húsdýrunum sem tamin voru af mönnum og hófst það í Austurlöndunum fyrir um 10 þúsund árum. Villt svín lifa nokkur saman í náttúrunni með stórt landsvæði undir sér. Þau róta allt að 7 tíma í jörðinni í leit að rótum og sveppum til að borða.&#xd;
Miklar kynbætur hafa orðið á svínum síðustu aldir og komu svínin til Íslands með landnámsmönnunum frá Noregi. Svínakjöt var lengi undirstaða fæðu landnámsmanna en sá stofn dó út á 16. eða 17. öld vegna minnkandi kornræktar hérlendis og kólnandi veðurfars.&#xd;
Síðan á 19. öld komu svín til landsins og hefur þeim fjölgað jafnt og þétt síðan. Svínarækt hefur aukist síðustu áratugina og eru um 3100 fullorðin svín á landinu í dag. Svínakjöt var ekki mikið borðað fyrr á öldum en hefur það breyst mikið. Í dag er svínakjötið næst neysluhæsta kjötið á Íslandi og vaxtarhraði grísa er mikill miðað við önnur dýr og gefur hver gylta af sér 2 tonn af kjöti. Þegar grísirnir fæðast eru þeir á spena til 4 vikna aldurs en þá verða þeir fráfærugrísir meðan þeir venjast að borða fóður. Þegar þeir hafa náð 25 kg lífþunga kallast þeir eldisgrísir þar til þeim er slátrað í kringum 90 kg.&#xd;
Velferðarstíur veita grísum aðgang að auðgunarefni eins og hálmi þannig að þeir geti sýnt sitt náttúrulega eðli. Hálmurinn er aukaafurð í kornrækt sem er oft notaður sem undirburður fyrir búfénað. Hann er talinn auka velferð gripanna og geti komið í veg fyrir halabit og árásargirni meðal stíufélaga. Til að átta sig á hvernig grísir hegða sér í velferðarstíum þarf að rýna vel í atferli svína og kynna sér reglugerðir um velferð svína.&#xd;
Byggingar og aðbúnaður þurfa því að vera með atferli og velferð grísanna í huga. Útisvæði fyrir grísina gefur þeim tækifæri á að fá frískt loft og þeir leitast til að skíta þar en ekki í&#xd;
legusvæðið sitt. Svín eru mjög snyrtileg dýr ef þau geta sýnt af sér sitt náttúrulega eðli.&#xd;
Byggingar sem eru með lítið pláss og of marga grísi í stíu geta aukið líkur á halabitum og vanlíðan hjá grísunum. Með því að hafa hálm fyrir grísina þá ná þeir að róta í jörðinni og við það eykst fóðurnýtingin, vaxtarhraðinn og velferð grísanna. Rætt var við fræðimenn á sviðum svínaræktar á Íslandi og einnig var haft samband við þýsk samtök til að leita upplýsinga í þessum geira. Þau gátu gefið innsýn inn í uppeldi grísa og hvernig svínarækt virkar. Eins og staðan er núna er erfitt að keppa við stærri aðila í svínarækt hérlendis en með lengri tíma þá gæti það gengið að vera með lokaeldi grísa eingöngu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-09T09:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-09T09:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-09T09:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-09T09:20:16Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38803</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Svín</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Atferli</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dýravelferð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Velferðarstíur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Bútækni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hálmur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Atferli og aðbúnaður fyrir lokaeldi grísa og velferðarstíur í svínahúsum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Behaviour and housing conditionsfor finishing pigs andwelfare pens at pig farms</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>