<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T17:18:01Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38815" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38815</identifier><datestamp>2025-10-29T14:55:10Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Inga Hanna Gunnarsdóttir 1997-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigríður Björnsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Öll hross sem mæta í kynbótadóm undirgangast heilbrigðisskoðun. Á héraðssýningum eru það starfsmenn Rannsóknamistöðvar landbúnaðarins (RML) sem framkvæma heilbrigðisskoðannir en á Landsmóti hestamanna (LM), sem haldið er annað hvert ár, er kveðið á um heilbrigðisskoðun undir umsjón Matvælastofnunar (MAST). MAST fylgir fyrirkomulagi sem kallast „klár í keppni“ þar sem hross eru skoðuð af dýralækni áður en þau fara í sýningu; fordóm, yfirlit og verðlaunaafhendingu, á meðan starfsmenn RML framkvæma sína skoðun strax eftir fordóm og yfirlit. Í heilbrigðisskoðun MAST er hrossum framvísað á stallmúl en alla jafna eru hrossin með mél upp í sér við skoðun RML.&#xd;
Markmið þessa verkefnis var að lýsa tíðni þrýstingssára í munni kynbótahrossa á LM 2014 -2018 samkvæmt gögnum frá framangreindum skoðunum. Lýst er mismunandi aðferðum við skoðanir á munni hesta og áhrif þeirra greind ásamt öðrum mögulegum áhrifaþáttum; landsmótsári, aldri, kyni og aðaleinkunn hæfileika.&#xd;
Samkvæmt gögnum frá MAST voru 40% kynbótahrossa (226 af 559) sem skoðuð voru á landsmótum á tímabilinu 2014 – 2018 með áverka í munni en samkvæmt gögnum frá RML var tíðnin einungis 2% (12/559). Frekari greiningar á gögnum frá MAST sýndu marktækan mun á tíðni þrýstingsáverka í munni milli þeirra ára/landsmóta sem voru til skoðuðunar. Við skoðun kynbótahrossa fyrir yfirlitssýningu á LM 2014 voru 50% (N=119) með áverka í munni en&#xd;
sambærilegar tölur fyiri LM 2016 sýndu lækkun niður í 30% (N=48). Á LM 2018 hækkaði tíðnin aðeins aftur, í 36% (N=59). Ekki kom fram að aldur hrossa, kyn eða árangur þeirra í kynbótadómi hefði áhrif á tíðni þrýstingsáverka í munni.&#xd;
Niðurstöðurnar sýndu umtalsverðan árangur við að draga úr þrýstingssárum í munni kynbótahrossa frá LM 2014, þegar bann var lagt við notkun stangaméla með tunguboga í hvers kyns sýningum og keppni. En betur má ef duga skal því á LM 2018 reyndist enn um þriðjungur kynbótahrossa með sár í munni, tengd beislsbúnaði, eftir fordóm. Það bendir til þess að enn sé of mikill þrýstingur á munn hesta við kynbótasýningar. Þrýstingssár í munni uppgötvast ekki nema við nokkuð ítarlega skoðun þar sem munnur hestsins er opnaður og þess gætt að ekkert sé þar sem hindrar sýn að slímhúð í kinnum, tungu, munnvikum og á tannlausa bilinu. Hinn mikli munur sem kom fram á niðurstöðum eftir skoðunaraðferðum sýnir hve mikilvægt er að þær séu framkvæmdar með sambærilegum hætti svo hægt sé að meta þróunina og vinna áfram að bættri velferð kynbótahrossa.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-09T10:56:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-09T10:56:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-09T10:56:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-09T10:56:21Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38815</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hestar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynbótasýningar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilbrigðisskoðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Munnáverkar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þrýstingssár í munni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tíðni þrýstingsáverka í munni kynbótahrossa á LM 2014-2018 og helstu áhrifaþættir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Pressure lesions in the mouth of Icelandic breeding horses</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>