<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:17:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38843" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38843</identifier><datestamp>2025-10-29T12:44:35Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jón Arnar Sverrisson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kristín Pétursdóttir 1981-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í nútíma samfélagi er mikið talað um þætti eins og umhverfi og útiveru. Lögð er áhersla á að útivera og hreyfing sé mikilvæg fyrir heilsu og vellíðan. Þetta á við um alla aldurshópa, allt frá börnum í leikskóla að öldruðum á dvalarheimilum og sýna rannsóknir fram á að útivera skiptir miklu máli varðandi andlega og líkamlega líðan. Umhverfið er ákveðin umgjörð utan um útivist og hefur náttúrulegt umhverfi oft mestu áhrifin á vellíðan. Græn svæði í borgum og bæjum eru því mikilvægur partur þegar kemur að skipulagi svæða. Huga þarf því að mörgu í hönnun á útivistarsvæðum almennt sem varðar notkun og nýtingu. Stofnanir eins og til dæmis dvalarheimili eru fyrir fólk sem komið er á efri ár, fólkið er allra jafna misjafnt til heilsunnar en hefur samt gaman og gott af útiveru eins og aðrir. Mörg dvalarheimili hafa á síðustu árum verið að breytast í hjúkrunarheimili, með fleira veikt fólk, sem þarf meiri hreyfingu og þjálfun.&#xd;
Í þessu verkefni verður sjónum beint að útivist aldraðra út frá umhverfi og lýðheilsu, og þá sérstaklega að öldruðum sem búa á dvalarheimilum.&#xd;
En hvernig er staðan með aðstöðu til útiveru og hvernig þurfa útivistarsvæði við dvalarheimili að vera ? Þeim spurningum verður leitast við að svara í þessu verkefni.&#xd;
Dvalarheimilið Dalbær á Dalvík er sjálfseignarstofnun sem rekin er með styrkjum frá ríki og bæ. Stór lóð er í kringum heimilið og aðstaða til útiveru svipuð og almennt er við dvalarheimili. Lóðin hefur mikið upp á að bjóða, þar sem hún liggur vel hvað varðar skjól og landslag, með gott útsýni yfir byggðina og fjöllin í kring.&#xd;
Markmið þessa verkefnis er að skoða hvernig hægt sé að bæta aðstöðu til útivistar við dvalarheimilið svo áhugi til útiveru verði meiri. Hönnunarforsendur eru unnar út frá greiningunni á svæðinu. Hönnunartillagan er byggð upp á því að gera gott og fjölbreytt útivistarsvæði sem hentar öldruðum en nýtist jafnfram sem almenningsgarður. Einnig voru hugmyndir íbúa teknar með í tillöguna, sem vissulega skipta miklu máli við hönnun á slíkum svæðum.&#xd;
Með hönnunartillögunni verður þannig leitast við að skapa aðstæður sem gefa öllum meiri gleði og tilbreytingu inn í daglegt líf.&#xd;
Þó þessi hönnunartillaga sé miðuð sérstaklega við dvalaheimilið Dalbæ á Dalvík, þá væri hægt að heimfæra hana við flest önnur dvalarheimili á landinu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-09T15:38:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-09T15:38:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-09T15:38:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-09T15:38:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38843</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dalbær</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Útivist</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aldraðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Upplifun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Útivistarsvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðgengi fatlaðra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lýðheilsa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dvalarheimili aldraðra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hönnunartillaga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Aldraðir og útivera. Útivistarsvæði við dvalarheimilið Dalbæ á Dalvík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Elderly and outdoor activities. Outdoor recreation area by the retayrment home Dalbær in Dalvík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>