<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-30T20:31:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38847" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38847</identifier><datestamp>2025-09-11T15:35:49Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Elsa Dagmar Runólfsdóttir 1985-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Fanney Ósk Gísladóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð er lokaverkefni til B.S. gráðu í náttúru- og umhverfisfræði við Landbúnaðarháskóla Íslands. Markmið þess er að gefa yfirlit yfir landnýtingu í Elliðaárdal í Reykjavík og skoða hver möguleg framtíðarnýting þar sé.&#xd;
Náttúrufar í dalnum er fjölbreytt og að ýmsu leiti einstætt á höfuðborgarsvæðinu en þar má t.d. sjá eina nútímahraunið sem hefur runnið innan borgarmarkanna og merkileg setlög sem sýna m.a. framskrið og hop jökla. Gróðurfarsgerðir eru þónokkrar og einkennast í dag mest af ræktun og nálægð við íbúabyggð en gróðurfar breyttist mikið á 20. öld við upphaf skógræktar í dalnum. Vatnasvið Elliðaánna er það stærsta á höfuðborgarsvæðinu sem hinar ýmsu tegundir fugla og annarra dýra halda sig við. Landnýting var með hefðbundnum hætti á svæðinu fram á 20. öld þegar það var nýtt undir landbúnað jarðanna sem lágu að dalnum. Laxagengd í Elliðaánum hefur verið breytileg og farið frá því að vera mjög ríkuleg í nær engin en er stöðug í dag. Á 20. öld var tímabili landbúnaðar að ljúka í dalnum. Við tók landnýting veituþjónustu í Reykjavík, en þar var virkjað fyrir rafmagnsveitu, borað eftir jarðhita fyrir hitaveitu og lagnir lagðar frá ánum fyrir vatnsveitu. Sú nýting er nú að mestu aflögð en einungis jarðhiti er nýttur þar í dag.&#xd;
Í dag skilgreinir Reykjavíkurborg dalinn sem borgargarð sem nýta má til ýmissar útivistar s.s. göngu, hjólreiða, veiða og leikja. Skógurinn og árnar eru aðalaðdráttaröfl dalsins í dag og er svæðið mikilvægt fyrir grænar samgöngur. Í borgargörðum er gert ráð fyrir mannvirkjum sem tengjast nýtingu þeirra sem útivistarsvæði. Áhyggjur eru nú af áætluðum byggingarframkvæmdum við slík mannvirki í dalnum sem þykja þrengja um of að náttúru hans. ALDIN Biodome er dæmi um framkvæmd sem hefur mætt andstöðu og er nú á lokastigum undirbúnings. Skoðað er hvort slíkar framkvæmdir eigi rétt á sér eða ekki. Rök fyrir stuðning við slík verkefni eru að þau stuðli að betri nýtingu svæðisins og auki þ.a.l. jákvæð áhrif þess í formi bættrar lýðheilsu og betri tækifæra til fræðslu. Rök gegn frekari framkvæmdum í og við dalinn eru þau að nóg hafi verið þrengt að nú þegar og að frekari framkvæmdir ógni lífríkinu þar. Færð eru rök fyrir því að hóflegar framkvæmdir við jaðar dalsins á svæði sem hentar síður til útivistar eins og það er í dag, sé betur varið undir mannvirki sem stuðli að útivist og náttúruupplifunum. Lagðar eru fram tillögur um hvernig náttúru- og söguminjar í Elliðaárdalnum gætu nýst betur til fræðslu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-10T09:18:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-10T09:18:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-10T09:18:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-10T09:18:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38847</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landnýting</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Elliðaárdal</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Náttúrufar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Landnýting í Elliðaárdal</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>