<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T03:16:10Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38852" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38852</identifier><datestamp>2025-10-29T15:01:57Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ingibjörg Ólöf Benediktsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Skúli Skúlason 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ragnhildur Helga Jónsdóttir 1972-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Áður fyrr var talið að hafið væri svo stórt og víðáttumikið að gjörðir okkar mannanna hefðu ekki nein áhrif þar, en annað hefur komið á daginn. Súrnun sjávar er afleiðing aukins koltvísýrings (CO₂) í andrúmslofti sem leiðir til þess að sýrustig sjávar lækkar. Vegna nokkurra yfirgripsmikilla rannsókna á kolefniskerfi sjávar síðustu áratugi er hægt að fullyrða að það er ekki lengur spurning um hvort súrnun sé að eiga sér stað í hafinu, heldur hversu mikil. Í fyrstu snerist áhersla rannsókna um að skoða áhrif súrnunar á minni, kalkmyndandi lífverur hafsins, þar sem áhrifin eru talin geta orðið mest. Áhrif á stærri lífverur, eins og fiska, hafa hingað til verið frekar lítið rannsökuð og er því ákveðinn þekkingarskortur á því sviði. Síðustu tuttugu árin hafa samt sem áður verið framkvæmdar margar rannsóknir á áhrifum súrnunar á sjávarfiska og stærri lífverur í hafinu. Í þessari ritgerð verður skoðað sérstaklega hvort súrnun sjávar hafi áhrif á ungviði sjávarfiska og þá hvernig. Notast verður við gögn úr rannsóknum annarra, þau tekin saman og niðurstöður túlkaðar út frá þeim. Niðurstöður sýna að súrnun sjávar hefur áhrif á fiska á fyrstu lífsstigum, en mismikið eftir tegundum, umhverfisaðstæðum og landfræðilegri staðsetningu. Margar tegundir þurfa að þola mikil afföll á fóstur, lirfu- og seiðastigi og verður þannig mikil fækkun í stofnum. Aðrar tegundir sýna breytingar á líkama þ.e. hægari vöxt og breytingu á heyrn og lyktarskyni. Einnig geta verið óbein áhrif í formi af minnkaðri líffræðilegrar fjölbreytni og breyting í tegundasamsetningu. Afleiðingar súrnunar sjávar á fiska virðist magnast upp þegar aðrar afleiðingar hnattrænnar hlýnunar eiga sér stað samtímis s.s. hlýnun sjávar og súrefnistap.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-10T10:01:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-10T10:01:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-10T10:01:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-10T10:01:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38852</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Súrnun sjávar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Loftslagsbreytingar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjávarvistfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fiskar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líffræðileg fjölbreytni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif súrnunarsjávará fyrstu lífsstig sjávarfiska</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">The effects of ocean acidification on the early life stages of marine fish</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>