<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T01:05:03Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/38853" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/38853</identifier><datestamp>2025-10-29T11:32:18Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þóra Atladóttir 1980-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón S. Ólafsson 1959-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þóra Katrín Hrafnsdóttir 1963-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Dægurflugur (Ephemeroptera) er ættbálkur vatnaskordýra sem finnst í öllum heimsálfum utan Suðurskautslandsins. Víða erlendis eru þetta þekktar flugur sem vekja talsverða athygli þegar þær fljúga upp svo milljónum skipta í stórum sveimum. Dægurflugur taka ófullkominni myndbreytingu og lífsferill þeirra skiptist í fjögur stig, egg- og gyðlustig sem eru í vatni og unglings- og fullorðinsstig sem eru vængjuð stig í lofti og á landi. Sérstaða dægurflugna meðal núlifandi skordýra er að þær hafa ein hamskipti eftir að þær eru komnar með vængi. Dægurflugugyðlur er auðvelt að greina frá öðrum vatnaskordýrum á hölunum þremur aftur úr afturbol og röð tálkna á hliðum afturbolsliða. Þær eru frekar stórar flugur og eru því góður biti fyrir stærri rándýr í vötnum, því eru þær hún vinsæl fyrirmynd fluguveiðimanna sem stunda fluguhnýtingar og laxveiði. Til að svara þeim spurningum sem settar voru fram um hversu margar tegundir dægurflugna finnast á Íslandi og útbreiðslu hennar á landsvísu var notast við fyrirliggjandi efnivið og niðurstöður rannsókna þar sem dægurflugur komu fyrir. Samkvæmt niðurstöðum þessa verkefnis er fisdægra, C. simile, eina dægurflugutegundin sem finnst á Íslandi og er hana helst að finna í tjörnum, allt að 200 cm djúpum, á láglendi. Þó finnst hún í stærri vötnum, t.d. Elliðavatni og Mývatni, og einnig finnst hún í yfir 300 m hæð yfir sjó, í tjörn á Þeistareykjum á Norðausturlandi. Hún finnst á Norður-, Austur- og Suðurlandi en hefur ekki fundist á Vesturlandi og Vestfjörðum. Gögn úr tveimur rannsóknarverkefnum sem athuganir á vistfræði fisdægru byggðu á bentu til að innan hvers rannsóknasvæðis þar sem hana var að finna var heilt yfir ekki munur á eðlis- og efnaþáttum með eða án fisdægru í tjörn og líklegra en ekki að finna fisdægru og rándýr saman í tjörn. Ríkjandi vatnagróður á öllum svæðunum var síkjamari og gulstör og reyndist það einnig vera í tjörnum með fisdægru.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-10T10:07:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-10T10:07:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-10T10:07:41Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-06-10T10:07:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/38853</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tjarnir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Dægurflugur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fisdægra</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landfræðileg útbreiðsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vistfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Dægurflugur á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Mayflies in Iceland</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>