<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T15:38:19Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/39535" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/39535</identifier><datestamp>2021-06-28T14:23:48Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Örvar Þór Kristjánsson 1978-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Húni Jóhannesson 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Því hefur verið haldið fram að Íslendingar séu einhverjir mestu umhverfissóðar í vestrænum&#xd;
heimi, en það sjáist svo lítið vegna þess hve fáir þeir eru, það er að Íslendingar séu&#xd;
umhverfissóðar í höfðatölu samanburði. Hins vegar er margt sem bendir til aukinnar&#xd;
umhverfisvitundar Íslendinga (Mbl.is, 2020).&#xd;
Rannsóknarefni þessarar ritgerðar snýr að því hvort að einhver tækifæri séu fólgin í þessari&#xd;
vitundarvakningu, en megintilgangur þessa verkefnis er að greina hvort það gæti borgað sig&#xd;
fjárhagslega að flytja inn og selja heimilistæki, nánar tiltekið, salernistæki, sem stuðlað gætu&#xd;
að umhverfisvænni hegðun Íslendinga þegar þeir ganga örna sinna.&#xd;
Á meðan margar rannsóknir snúa að umhverfisvitund og -ábyrgð og hvað sé hægt að&#xd;
gera til að sporna við því sem hefur verið talin áhrifa ýmisskonar neyslu á umhverfið, þá eru&#xd;
færri rannsóknir sem snúa að því með beinum hætti hvort í því séu fólgin viðskiptatækifæri –&#xd;
sem gætu bæði unnið að umhverfisverndarmarkmiðum, en á sama tíma skapað virði sem&#xd;
fjárfesting. Þetta er eitt meginviðfangsefni þessarar ritgerðar, en afmarkað á þann hátt að&#xd;
rannsakað er hvernig hægt er að draga úr salernispappírsnotkun samtímis því að nýta&#xd;
viðskiptatækifæri.&#xd;
Hér verður skoðað hversu fýsilegt fyrir fjárfesti að stofna fyrirtæki, nefnt Skol ehf., og&#xd;
flytja inn ákveðið magn af þremur tegundum af skolsetum, með það í huga að selja til almennra&#xd;
neytenda á Íslandi. Þetta myndi draga úr notkun salernispappír sem talinn er vondur fyrir&#xd;
umhverfið að því leiti aðframleiðslan er orkufrek og notast er við skaðleg efni eins og klór&#xd;
(Industrial Shredders, 2020). Nánar verður sagt frá því í kafla þrjú. Þannig hefði þetta&#xd;
rannsóknarefni bæði möguleg fjárhagsleg áhrif fyrir fjárfesti, en samtímis áhrif á umhverfið.&#xd;
Verkefnið skiptist þannig upp að fyrst er farið nokkrum orðum um framleiðslu og&#xd;
innflutning á klósettpappír og sett í samhengi við umhverfisáhrif. Síðan kemur almenn kynning&#xd;
á fyrirbærinu og að henni lokinni sérstakur kafli um hreinlæti. Þar á eftir er fjallað um þær&#xd;
vörur sem hér verða til skoðunar. Við tekur umfjöllun um samkeppni og markaðsáætlun, síðan&#xd;
framkvæmdaáætlun og svo fjárhagsáætlun. Í lokin er svo farið yfir SVÓT-greiningu og endað á&#xd;
niðurstöðum. Ýmiss konar aukaefni er svo að finna í viðauka.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-28T14:23:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-28T14:23:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-28T14:23:48Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2020-12-16T16:53:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2020-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/39535</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfisvænar vörur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Salerni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lokaritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Skol ehf. : viðskiptagreining</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>