<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-27T12:30:41Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/39585" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/39585</identifier><datestamp>2021-06-29T14:03:13Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Þórhildur Hafsteinsdóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Haraldur Daði Ragnarsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessarar rannsóknar var að greina hversu vel undirbúningur og framkvæmd á styttingu vinnuvikunnar innan Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins samræmist fræðum breytingastjórnunar. Meginþemu rannsóknarinnar sneru annars vegar að upplifun millistjórnenda, sem fóru með ábyrgð og framkvæmd breytinganna, og hins vegar upplifun starfsmanna af breytingaferlinu. Rannsóknarspurningin var: Hver eru viðhorf og upplifun millistjórnenda og starfsmanna til skipulags og undirbúningsvinnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins vegna styttingar&#xd;
vinnuvikunnar?&#xd;
Við framkvæmd rannsóknarinnar var annars vegar notast við megindlega rannsóknaraðferð en hún fór fram með spurningakönnun fyrir starfsmenn fimm starfsstöðva Heilsugæslunnar sem breytingarnar höfðu með beinum hætti áhrif á. Hins vegar var eigindlegri rannsóknaraðferð beitt í formi hálf opinna viðtala við millistjórnendur sömu fimm starfsstöðva. Markmið þess að tvinna saman þessar tvær rannsóknaraðferðir var að fá skýra mynd af viðhorfum stjórnenda og starfsmanna, í þeirri viðleitni að leggja mat á hversu vel upplifun þeirra endurspeglast í þeim fræðum sem lágu til grundvallar í breytingaferlinu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að heilt yfir var ánægja meðal bæði stjórnenda og starfsmanna gagnvart breytingunum sjálfum, það er skemmri vinnutíma á viku. Þó mátti víða&#xd;
greina skort upplifun markviss upplýsingaflæðis og þátttöku stjórnenda og starfsmanna í breytingaferlinu, en heilt yfir samræmdist framkvæmdin fræðum breytingastjórnunar fremur takmarkað, sér í lagi þegar litið er til hlutverks yfir- og verkefnastjórn Heilsugæslunnar. Rannsóknin náði til nokkurra starfssviða heilsugæslustöðvanna og má auðveldlega greina mun á upplifun starfsmanna eftir starfssviðum. Þannig voru hjúkrunarfræðingar líklegri til þess að upplifa ánægju með breytingarnar, framkvæmd þeirra og skipulag, auk þess að upplifa sig virka þátttakendur í ferlinu. Aftur á móti upplifa ritarar frekar að mörgu hafi verið ábótavant í ferlinu og upplifðu sig síður þátttakendur í innleiðingu breytinganna. Markmið með styttingu vinnuvikunnar er meðal annars að auka starfsánægju og auðvelda samræmingu vinnu og einkalífs. Þrátt fyrir það sýna niðurstöður rannsóknarinnar að í kjölfar &#xd;
breytinganna má greina aukið álag meðal starfsmanna og í einhverjum tilfellum einnig aukin streitueinkenni.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-06-29T14:03:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-06-29T14:03:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-06-29T14:03:13Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-05-10T19:56:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/39585</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannauðsstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Breytingastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vinnutími</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vinnumarkaður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Stytting vinnuvikunnar : breytingaferlið - viðhorf og upplifun millistjórnenda og starfsmanna Heilsugæslu Höfuðborgarsvæðisins</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Shortening the work week : the change process - attitudes and experiences of middle managers and employees of the Health Care Centres</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>