<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T18:34:11Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/39767" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/39767</identifier><datestamp>2021-08-17T10:18:05Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Alma Glóð Kristbergsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Valtýr Stefánsson Thors 1975-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ásgeir Haraldsson 1956-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Íris Kristinsdóttir 1993-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kamilla Sigríður Jósefsdóttir 1980-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur:  Bólusetningar eru áhrifaríkar, hindra farsóttir, koma í veg fyrir ótímabær dauðsföll og eru hagkvæmar. Á Íslandi er góð þátttaka í bólusetningum, yfir 90% barna eru bólusett. Ef seinkun verður á bólusetningum barna getur það gert þau berskjaldaðri fyrir smitsjúkdómum. Markmið rannsóknarinnar var að meta hvort bólusetningar barna á Íslandi væru gefnar á réttum tíma samkvæmt tilmæli landlæknis. Bólusetningar sem gefnar voru snemma og seint voru skoðaðar og hvort heilbrigðisumdæmi, fæðingarárgangur eða heimsfaraldur COVID-19 hefðu þar áhrif. Efni og aðferðir: Í rannsókninni var stuðst við bólusetningagagnagrunn varðandi upplýsingar um bólusetningar barna við þriggja til 18 mánaða aldur á árunum 2016 til 2020. Þar kom fram aldur barnanna í dögum við bólusetningu, fæðingarmánuður og heilbrigðisumdæmi. Skoðað var hvort bólusetningarnar væru gefnar á réttum tíma, snemma, seint eða þeim hafnað. Réttur tími var talinn vera tvær vikur til eða frá markmiði. &#xd;
Niðurstöður: Við þriggja mánaða aldur fengu 90,6% barna DKTPHib og Pneumókokka bólusetningu á réttum tíma. Við fimm mánaða aldur var hlutfall barna sem fékk bólusetningarnar á réttum tíma 87,2% og 73,6% við 12 mánaða aldur. Bólusetning gegn meningókokkum C var gefin á réttum tíma hjá 77,7% barna við sex mánaða aldur og 75,8% barna við átta mánaða aldur. Hlutfall barna sem var bólusett gegn hlaupabólu árið 2020 á réttum tíma var 57,7% við 12 mánaða aldur og 70,2% við 18 mánaða aldur. MMR bóluefni var gefið við 18 mánaða aldur, 48,7% barna voru bólusett á réttum tíma en 36% barna fékk bóluefnið snemma. Hlutfall seinkaðra bólusetninga minnkaði árin 2016-2018, bólusetningar voru frekar gefnar seint á landsbyggðinni og COVID-19 jók hlutfall þeirra bólusetninga sem seinkaði ásamt því að færri bólusetningar voru gefnar snemma. &#xd;
Ályktanir: Meirihluti barna var bólusettur á réttum tíma miðað við bólusetningaskema en þó var um fjórðungur 12 mánaða barna með seinkun á sínum bólusetningum. Tafir urðu á bólusetningum barna gegn hlaupabólu árið 2020 vegna skorts á bóluefni á Íslandi. Ljóst var að heimsfaraldur hafði áhrif á tímasetningar bólusetninga ásamt viðkomandi heilbrigðisumdæmi þar sem bólusetning var gefin.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-08-17T10:18:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-08-17T10:18:03Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-08-17T10:18:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-08-16T15:50:05Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-08</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/39767</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tímasetningar bólusetninga barna á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>