<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T01:34:56Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/39832" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/39832</identifier><datestamp>2023-06-21T13:39:59Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Gerða Theodóra Pálsdóttir 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Þór Pétursson 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð er varpað þjóðfræðilegu ljósi á einstaklinga með sjálfsofnæmissjúkdóminn selíak og rannsakað hvernig þeim tekst að takast á við nýja tilveru þar sem ótti og áhætta í daglegu lífi er staðreynd. Einnig er skoðað hvaða félagslegu og andlegu áhrif það hefur að geta ekki lengur heilsu sinnar vegna, deilt hefðbundnum mat, eins og brauði, með fólkinu í kringum sig án þess að verða veik. Eins er kannað hvernig fólk sem hefur fengið selíakgreiningu reynir að fóta sig innan ákveðinna viðmiða samfélagsins og tekst á við tilveru sem er á skjön við þá siði og venjur hversdagslífsins sem þau áður voru vön. Til þess að nálgast viðfangsefnið nýti ég mér eigindlega aðferðafræði í formi viðtala til að komast nær persónulegri upplifun viðmælenda minna sem byggist að mestu á tilfinningum sem getur reynst erfitt að færa í orð. Ég mun leitast við að tengja efnið við kenningar þjóðfræðinnar svo sem borðhald/samkennd (e. commensality), jaðarástand (e. liminality), líkömnun (e. embodiment) og tilfinningar (e. emotions). Rannsóknin leiðir í ljós að einstaklingar með selíak upplifa sig töluvert utan samfélagsins og þurfa að takast á við ýmsar áskoranir í sínu daglega lífi. Þau þurfa að leggja allt sitt traust í hendur þeirra sem bæði framleiða matinn og einnig þeirra sem matreiða hann. Það er því greinilegt að það að greinast með selíak, hefur merkjanleg áhrif á líf þeirra og stöðu innan samfélagsins.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2021-09-08T12:25:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2021-09-08T12:25:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2021-09-08T12:25:10Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-09-07T19:17:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/39832</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þjóðfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„Er nokkuð glúten í þessu?“: Lífið með selíaksjúkdómnum á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>