<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T18:08:22Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4016" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4016</identifier><datestamp>2018-10-15T15:16:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_289</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jóhanna Thorsteinson 1952-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jóhanna Thelma Einarsdóttir 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kristín Valsdóttir 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð fjallar um markvisst nám í grunnþáttum tónlistar í leikskóla og&#xd;
tengsl hennar við hljóðkerfisvitund leikskólabarna. Fjallað er um sterk&#xd;
tengsl hljóðkerfisvitundar og almenns málþroska og mikilvægi góðrar&#xd;
hljóðkerfisvitundar leikskólabarnsins fyrir lestrarnámið síðar meir.&#xd;
Rannsóknarspurningin er: Hefur markviss þjálfun grunnþátta í tónlist&#xd;
áhrif á hljóðkerfisvitund leikskólabarna? Í henni er fólgin sú kenning að&#xd;
efla megi hljóðkerfisvitund leikskólabarna með markvissri tónlistariðkun&#xd;
og þannig styrkja grunninn að lestrarnámi þeirra síðar. Slík markviss&#xd;
þjálfun grunnþátta tónlistar gæti jafnvel minnkað líkur á lestrarörðugleikum&#xd;
þegar í grunnskólann kemur. Þetta er megindleg rannsókn með&#xd;
tilraunasniði. Úrtakið var hentugleikaúrtak eins leikskóla þar sem tónlist&#xd;
var ekki sérstaklega skipulagður þáttur í daglegu starfi. Í leikskólanum voru&#xd;
27 börn í elsta árgangi. Öll börnin voru forprófuð í HLJÓM-2 prófi, beitt&#xd;
var lagskiptu tilviljanaúrtaki í tilraunahóp og samanburðarhóp.&#xd;
Börnin í tilraunahópi fengu 20 kennslustundir á sex vikna tímabili að&#xd;
meðaltali í 45 mínútur hver kennslustund. Börnin í samanburðarhópi fengu&#xd;
enga sérstaka aðra kennslu en hefðbundið leikskólastarf utan eitt barn sem&#xd;
var í samanburðarhópi og fékk nokkurn stuðning í málörvun hjá&#xd;
sérkennslustjóra. Kennslan í tilraunahópi fór fram á útivistartíma barnanna&#xd;
eftir hádegið. Börnin voru endurmetin á HLJÓM-2 þremur vikum eftir að&#xd;
inngripum lauk. Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu miklar framfarir hjá&#xd;
barnahópnum öllum milli mælinganna og voru það tölfræðilega marktækar&#xd;
niðurstöður. Tónlistarhópi fór lítið eitt meira fram en samanburðarhópi.&#xd;
Hins vegar var ekki tölfræðilega marktækur munur á milli hópanna og&#xd;
verður því ekki hægt að fullyrða að tónlistarkennslan hafi haft áhrif á þróun&#xd;
hljóðkerfisvitundarinnar. Þær góðu framfarir sem börnin sýndu í lok&#xd;
rannsóknarinnar skýrast líklegast af auknum þroska barnanna á tímabilinu.&#xd;
Lykilorð: Hljóðvitund, hljóðskynjun, tónlistarþroski.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Kópavogsbær, Hljóðfærahúsið</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-10-15T09:21:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-10-15T09:21:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-10-15T09:21:00Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4016</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Uppeldis- og menntunarfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Leikskólabörn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hljóðkerfisvitund</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">HLJÓM-2</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tónlistarkennsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Tónlistarnám</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Leikskólar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Megindlegar rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tónlistarnám í leikskóla og þróun hljóðkerfisvitundar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" qualifier="alternative" lang="is">Music lessons in playschools and the development of phnological awareness</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>