<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T04:46:09Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/40198" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/40198</identifier><datestamp>2022-01-13T13:34:43Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Uros Rudinac 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Eðvald Möller 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Straumlínustjórnun (e. lean) er aðferðafræði sem gagnast stjórnendum til að auka skilvirkni og koma í veg fyrir sóun í fyrirtækjum. Á undanförnum árum hafa vinsældir straumlínustjórnunar aukist og afleiðingin af því er að æ fleiri fyrirtæki innleiða straumlínustjórnun. Rannsóknir hafa sýnt að ávinningur af innleiðingu straumlínustjórnunar er mikill en innleiðingin getur oft verið áskorun. &#xd;
Áhugi á straumlínustjórnun og hugmynd að ritgerðinni vaknaði veturinn 2019 eftir að gestafyrirlesari sem starfar sem straumlínustjórnunarráðgjafi talaði um sína reynslu og nefndi að fyrirtækin sem hann ráðlagði hefðu komið í veg fyrir sóun, bætt framleiðni og sparað heilmikla fjármuni. &#xd;
Eigindleg rannsókn var framkvæmd þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við átta viðmælendur, fjóra hvorn úr sínu fyrirtæki. Viðmælendurnir höfðu mismunandi stjórnendastöður sem og reynslu af því að innleiða straumlínustjórnun. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að ef innleiðing straumlínustjórnunar er árangursrík þarf að vera fyrir hendi skilningur, góð samskipti og virkt upplýsingaflæði. Stuðningur frá yfirmönnum og æðstu stjórnendum er mikilvægur. Ekki er nóg að nýta sér verkfærin og tólin, einnig þarf að vera að ríkja hugsunarháttur straumlínustjórnunar innan fyrirtækisins. Ávinningurinn af innleiðingu straumlínustjórnunar getur meðal annars komið fram í betri starfsánægju, minna álagi og minni birgðum. Helsta áskorunin var að sannfæra fólk um ágæti straumlínustjórnunar. Fyrirtæki sem ætla að innleiða straumlínustjórnun þurfa að átta sig á því að engin ein leið er talin rétt og því þurfa  fyrirtækin að velja þá aðferð sem þeim hentar best. Fyrirframgreind atriði komu bæði fram í fræðunum og í greiningu viðtalanna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Viðskiptafræðideild hefur samþykkt lokaðan aðgang að þessari ritgerð í 2 ár.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-01-04T10:58:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-01-04T10:58:39Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-01-04T10:58:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-01-04T09:51:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-02</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/40198</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verkefnastjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„Þetta er vegferð sem klárast aldrei“ Innleiðing og árangur straumlínustjórnunar í framleiðslu- og þjónustufyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>