<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T05:38:24Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4020" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4020</identifier><datestamp>2018-10-15T15:16:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_130</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_289</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðrún V. Ásgeirsdóttir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Erlingur Jóhannsson 1961-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Fjöldi eldri borgara fer vaxandi í þjóðfélaginu og sífellt fleiri gera sér grein fyrir hversu mikilvægt það er að halda góðri heilsu til að bæta góðum árum við lífið. Hreyfing hefur jákvæð áhrif á heilsufar einstaklinga til langs tíma, til dæmis þrekið eykst, svefn verður betri og lífsgæði batna. Mikilvægt er fyrir þá sem á efri ár eru komnir að hafa góð lífsgæði þar sem í því felst að hugsa um sjálfan sig í athöfnum daglegs lífs lengur en ella. &#xd;
Markmið rannsóknarinnar var að skoða niðurstöður úr spurningalistanum Heilsutengd lífsgæði og hreyfimælum við upphaf og lok 26 vikna íhlutunar. Skoðaður var munurinn á milli þjálfunarhópa (ÞHH og ÞHÁ) og viðmiðunarhóps (VHH)  og milli kynja. Þá voru athugaðar nokkrar valdar breytur úr holdafarsmælingum (hæð, þyngd, fituprósentu (DEXA) og mittis- og mjaðmamáli) og sex mínútna gönguprófi. &#xd;
Heildarfjöldi þátttakenda var 173 en 146 einstaklingar kláruðu 26 vikna þol- og styrktaríhlutunina. Þátttakendur voru hópur eldri borgara af Stór-Reykjavíkursvæðinu (N=105) sem skiptist í þjálfunarhóp (ÞHH;N=47) og viðmiðunarhóp (VHH;N=58) og þjálfunarhópur frá sveitarfélaginu Árborg (ÞHÁ;N=41). Meðalaldur ÞHH var 79,38 (±4,8), VHH var 77,97 (±3,8) og ÞHÁ var 74,68 (±3,3) ár. &#xd;
Í upphafi rannsóknar var ekki marktækur munur milli þjálfunarhóps og viðmiðunarhóps í neinum af flokkunum innan heilsutengdra lífsgæða. Léttust þátttakendur þjálfunarhóps um 1,8% (p≤0,001), minnkuðu ummál mittis um 4,8% (p≤0,001), lækkuðu líkamsþyngdarstuðul sinn um 1,8% (p≤0,001) og fituprósentu um 4,4% (p≤0,001). Þeir bættu marktækt við heildarhreyfingu um 15,5% (p≤0,001), alla daga um 28,5% (p≤0,001), virka daga um 19,9% (p≤0,001) og á helgardögum um 8,6% (p≤0,05) og í sex mínútna gönguprófi um 12,6% (p≤0,001). Þá bættu þeir heilsutengd lífsgæði um 1,6% (p≤0,05) og mátu þrek (p≤0,001), líðan (p≤0,05) og líkamsheilsu (p≤0,001) betri í lok íhlutunar. Hjá viðmiðunarhóp minnkaði hreyfing marktækt (p≤0,05) en lífsgæðin voru óbreytt. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að markviss þol- og styrktaríhlutun, ásamt  næringarfræðslu í 26 vikur, skili árangri til bættrar heilsu hjá eldri aldurshópum. Mikilvægt er að halda áfram rannsóknum á þessu sviði til að finna betur út hvaða íhlutunarþættir skipta sköpum í forvörnum þessa aldurshóps til bættrar líkamlegrar og andlegrar heilsu.&#xd;
Lykilorð: Heilsutengd lífsgæði, eldri aldurshópar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="sponsorship" lang="is">Rannsóknarnámssjóður (Rannís), Rannsóknarsjóður Kennaraháskóla Íslands, Máttur sjúkraþjálfun ehf, World Class, Knattspyrnusamband Íslands, Heilbrigðisstofnun Suðurlands, sveitarfélagið Árborg, Samband sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu, Hjartavernd, Verkalýðsfélagið Hlíf í Hafnarfirði, Öldrunarráð Íslands, Sjómannadagsráð Reykjavíkur og Hafnarfjarðar, Kiwanisklúbburinn Eldborg í Hafnarfirði, Íþrótta- og tómstundasvið Reykjavíkur (ÍTR), Íþróttasjóður menntamálaráðuneytis og Vísindasjóður Félags íslenskra sjúkraþjálfara (FÍSÞ)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-10-15T11:57:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-10-15T11:57:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-10-15T11:57:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4020</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íþrótta- og heilsufræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lífsgæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aldraðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hreyfing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Holdafar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líkamsþjálfun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þolþjálfun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Styrktarþjálfun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heilsufar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Megindlegar rannsóknir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Holdafar, hreyfing og heilsutengd lífsgæði eldri aldurshópa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>