<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T18:41:57Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/40225" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/40225</identifier><datestamp>2022-01-05T11:25:09Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_34317</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Höskuldur Gunnlaugsson 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Róbert Ragnar Grönqvist 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari ritgerð eru teknir til rannsóknar möguleikar lítilla og og meðalstórra fyrirtækja á íslenskum hlutabréfamarkaði með sérstöku tilliti til First North Iceland hliðarmarkaðar Kauphallarinnar. Skoðuð er staða og framlegð lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu- og efnahagslífi landsins og helstu leiðir þeirra til fjármögnunar í uppbyggingu sinni og rekstri. Með Hruninu tók fyrir fjármögnun þeirra með hlutafé og lánafyrirgreiðslu handa þeim voru sett mun þrengri skilyrði en áður. Kauphöllin var í þessu ástandi líflaus og fráleitt nothæfur vettvangur fyrir fjármögnun lítilla og meðalstórra fyrirtækja, allra síst nýrra. &#xd;
Með stofnun First North vaxtarmarkaðar Nasdaq árið 2006 í fjórum af Norðurlöndunum auk Eystrasaltsríkjanna og stöðu hans sem hliðarmarkaðar Kauphallarinnar sköpuðust nýir möguleikar fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki að sækja sér hlutafé á opnum markaði.&#xd;
Í rannsókninni er skoðað hverjir þessir möguleikar eru og hvernig fyrirtækin geti helst nýtt sér þá. Í því augnamiði er fyrirliggjandi þekking um hlut lítilla og meðalstórra fyrirtækja í atvinnu og efnahagslífi þjóðarinnar skoðuð og ríkjandi fjármögnunarleiðir þeirra. Í ljósi þeirrar þekkingar er leitað upplýsinga, mats og álits hjá nokkrum aðalleikurum á þessu sviði á kostum þess og göllum að skrá fyrirtæki á First North Iceland, hliðarmarkað Kauphallarinnar, forstjóra Kauphallarinnar, tveim fyrirtækjaráðgjöfum hjá Arctica Finance, forstjóra Play og forstjóra Sláturfélags Suðurlands,. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar eru athyglisverðar: Þessi markaður tengir vissulega saman fjármagn og fyrirtæki í rekstri og þróun en hann tengir líka saman fjármagn og hugmyndir. Til þess að virkja betur almenning til beinnar þátttöku og áhrifa í atvinnulífinu í gegnum sparifé sitt er nauðsynlegt að hlúa að því sem viðmælendur kalla hluthafamenningu þjóðarinnar. Til þess á ríki og löggjafi nokkrar leiðir en stóra spurningin gæti verið sú, hvort tímabært sé að færa hluta af vaxandi lífeyrissparnaði þjóðarinnar úr höndum fárra stjórnenda í hendur þeirra sem eiga hann og vilja ráðstafa honum persónulega í fjárfestingar í litlum og meðalstórum fyrirtækjum sem þeir hafa trú á.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-01-05T11:25:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-01-05T11:25:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-01-05T11:25:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2021-12-22T23:21:40Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2021-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/40225</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hlutabréfamarkaðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lítil og meðalstór fyrirtæki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Tækifæri lítilla og meðalstórra fyrirtækja á hliðarmarkaði Kauphallarinnar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>