<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-01T21:31:32Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4074" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4074</identifier><datestamp>2018-10-15T08:52:56Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Guðlaug Matthildur Jakobsdóttir 1967-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gauti Sigþórsson 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsókn þessi byggir á að kanna viðhorf aðila innan myndlistarsviðsins til myndlistargagnrýni í fjölmiðlum á Íslandi. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar eru kenningar franska félagsfræðingsins Pierre Bourdieu. Í upphafi verkefnisins er fjallað um þann bakgrunn sem myndlistargagnrýni í nútímanum sprettur úr, m.a. út frá alþjóðlegum hugmyndum. Því næst er athugað við hvaða skilyrði myndlist á Íslandi er og hefur verið framleidd, í þeim tilgangi að tengja þróun myndlistargagnrýni á Íslandi við myndlistarsviðið í heild sinni. Tekið er dæmi um átök innan myndlistarsviðsins og hlutverk gagnrýnenda er greint út frá þeirri umfjöllun. Átökin áttu sér stað á tímabilinu frá 1950 til 1970, eða frá því að abstrakt listamennirnir komu fram á sjónarsviðið og þar til hugmyndafræðilega listin var kynnt til sögunnar með SÚM hópnum. Rakin er þróun myndlistargagnrýni á Íslandi frá byrjun 20. aldar til samtímans. Rannsóknin sjálf byggist á spurningakönnun, viðtölum og vettvangsrannsóknum til þess að öðlast meiri yfirsýn yfir stöðuna og viðhorfin til myndlistargagnrýni. Greining gagnanna byggist á að fá heildstætt viðhorf til hlutverks gagnrýnenda og í því samhengi viðhorf til fjölmiðla, frama listamanna, listaverkamarkaðarins, ástæður og afleiðingar hverfandi myndlistargagnrýni. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að mikil þörf sé á myndlistarumræðu á íslandi. Íslenska myndlistarsviðið hefur þróast í átt að alþjóðlegum viðmiðum um markaðsvæðingu myndlistar. Svo virðist sem mikill skortur sé á myndlistargagnrýnendum á Íslandi. Að auki benda niðurstöður á það að þrátt fyrir að þátttakendur rannsóknarinnar séu allir á þeirri skoðun að allt of lítil myndlistargagnrýni sé í íslenskum fjölmiðlum þá virðast þeir vilja fá aukna umfjöllun um sig, en ekki endilega í formi gagnrýni heldur samræðu um hlutverk og gildi listaverksins í samfélaginu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2009-10-29T10:22:01Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2009-10-29T10:22:01Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2009-10-29T10:22:01Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-09</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4074</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Myndlist</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gagnrýni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Myndlistargagnrýni : eintal sem leitar eftir samræðu : viðhorf aðila innan myldistarsviðsins til myndlistargagnrýni í fjölmiðlum á Íslandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>