<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T10:24:55Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/40895" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/40895</identifier><datestamp>2022-05-05T10:46:22Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Helga Lára Guðmundsdóttir 1995-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gylfi Magnússon 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Tilgangurinn með þessari rannsókn var að kanna möguleika til aukningar á sparnaði til ellilífeyrisára. Hagkvæmur kostur til að auka við tekjur á ellilífeyrisárum er með séreignarsparnaði. Í þessari rannsókn voru skoðaðar mögulegar leiðir til aukinnar nýtingar á séreignarsparnaði. Jafnframt voru þættir sem áhrif hafa á val einstaklinga hvort þeir kjósa að safna í séreignarsparnað skoðaðir. Einnig var athugað hvort tenging væri á milli fjármálalæsis og ákvörðunar um að safna í séreignarsparnað. &#xd;
Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvort hægt sé að nýta atferlishagfræði (e. behavioral economics) til að hvetja einstaklinga til sparnaðar með séreignarsparnaði. Skoðað var hvort uppsetning úrskráningar (e. opt-out) séreignarsparnaðar kerfis myndi verða til þess að fleiri safni í séreignarsparnað en gera í dag. Séreignarsparnaðarkerfi á Íslandi er valfrjálst og þurfa einstaklingar að tilkynna vinnuveitanda um vilja sinn til að greiða í séreignarsparnað. Með úrskráningakerfum væri þessu snúið við, launþegar væru sjálfkrafa skráðir í séreignarsparnað og þyrftu að óska eftir því að skrá sig úr sparnaðinum vilji þeir ekki safna í séreignarsparnað. &#xd;
Við gerð rannsóknarinnar var stuðst við megindlega aðferðafræði og gögnum var safnað með rafrænni spurningakönnun.&#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að helstu ástæður þess að einstaklingar safna í séreignarsparnað er mótframlag vinnuveitanda og til þess að safna fyrir efri árum. Helstu ástæður þess að einstaklingar kjósa að greiða ekki í séreignarsparnað var að þeir vildu heldur ráðstafa sínum sparnaði sjálfir og að þeir töldu sig þurfa á öllu sínum tekjum að halda fyrir mánaðarlegum útgjöldum. Í ljós kom að með úrskráningakerfi fyrir séreignarsparnað eykst fjöldi þeirra sem kjósa að safna í séreignarsparnað. Hægt er að draga þá ályktun að úrskráninga séreignarsparnaðarkerfi leiði til þess að fleiri einstaklingar safna í séreignarsparnað en myndu gera ef einstaklingar þurfa að skrá sig sjálfir í séreignarsparnað. Slíkt kerfi myndi því auka fjölda þeirra sem safna í séreignarsparnað. Niðurstöður sýndu einnig að tengsl væru á milli fjármálalæsis og þess að safna í séreignarsparnað. Hægt er að færa rök fyrir því að ef fjármálalæsi ykist myndi fjöldi þeirra sem velja að safna í séreignarsparnað einnig aukast.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-05-05T10:46:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-05-05T10:46:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-05-05T10:46:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-05-04T22:50:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/40895</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hvernig má fjölga þeim sem safna í séreignarsparnað?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>