<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-05T05:00:12Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/41242" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/41242</identifier><datestamp>2022-05-16T07:54:14Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2075</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hjördís Tinna Pálmadóttir 1997-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Guðrún Dóra Bjarnadóttir 1982-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kristín Ólafsdóttir 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Valþór Ásgrímsson 1980-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ingibjörg Halla Snorradóttir 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vímuefnaneysla í æð er veigamikill áhrifaþáttur í ótímabærum veikindum á heimsvísu. Rannsóknir á vímuefnaneyslu í æð byggja að miklu leyti á frásögnum einstaklinga á meðferðarstofnunum, lítið er því vitað um þá sem nota vímuefni í æð en leita sér ekki lækninga. Rannsóknin byggir á evrópskri samvinnurannsókn (ESCAPE) sem sett var á laggirnar til að fylgjast með hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði með efnafræðilegri greiningu. Með aukinni vitneskju um hvaða vímuefni eru í notkun má bæta skaðaminnkandi þjónustu við einstaklinga sem nota vímuefni í æð og draga úr skaðlegum áhrifum neyslunnar. Meginmarkmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða vímuefni finnast í notuðum sprautubúnaði sem skilað er til förgunar, hvaða efni er algengast að finna og algengi þess að fleiri en eitt efni finnist í hverri sprautu. &#xd;
Efniviður og aðferðir: Notuðum sprautubúnaði var safnað frá október 2021 til mars 2022 í Reykjavík. Engin samskipti voru milli notenda sprautubúnaðarins og þess sem aflaði gagna. Ein sprauta var tekin úr hverju nálaboxi til að lágmarka líkur á að fleiri en eitt sýni fengist frá sama einstaklingi. Alls var 203 sýnum var safnað á tímabilinu. Eftir sýnameðhöndlun voru efnin greind með gasgreini sem tengdur er massaskynjara (GC/MS) og niðurstöður metnar með Masshunter hugbúnaði með aðstoð staðalefna helstu fíkniefna á markaði. &#xd;
Niðurstöður: Alls fundust 10 mismunandi vímuefni og fjögur mismunandi íblöndunarefni í sprautunum. Metýlfenídat var algengasta vímuefnið en það fannst í 105 sprautum (51,7%). Önnur örvandi efni fundust í um 42% sprauta og ópíóíðar í um þriðjungi sprauta. Engin efni fundust í þremur sprautum. Algengasta íblöndunarefnið var koffín en það fannst í 86 sprautum (42,4%). Rúmlega helmingur sprauta (54,2%) innihélt tvö eða fleiri vímuefni eða íblöndunarefni.&#xd;
Ályktanir: Í Reykjavík er metýlfenídat mun algengara til vímuefnaneyslu í æð samanborið við niðurstöður ESCAPE. Heróín, búprenorfín og katínónar voru með algengustu efnum í ESCAPE en fundust ekki í Reykjavík. Neyslan virðist blönduð, um helmingur sprauta í ESCAPE innihélt fleiri en eitt vímuefni en tæplega þriðjungur í Reykjavík. Algengt var að sjá blöndu með örvandi vímuefni og ópíóíða en einnig blöndu örvandi vímuefna. Íblöndunarefni eru algeng og ekki er víst að notendur séu meðvitaðir um það.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-05-16T07:54:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-05-16T07:54:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-05-16T07:54:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-05-13T16:50:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/41242</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Læknisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fíkniefnaneytendur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sprautunálar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Vímuefnaneysla í æð: Rannsókn á notuðum sprautunálum í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>