<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T10:08:51Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/41603" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/41603</identifier><datestamp>2025-10-29T11:15:09Z</datestamp><setSpec>com_1946_35056</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35057</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Linda Rún Einarsdóttir 1999-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jóhannes Sveinbjörnsson 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Á Íslandi hefur sauðfjárrækt lengi verið einn af mikilvægustu þáttum landbúnaðarins. Nú til dags er dilkakjöts framleiðsla aðalstarfsemi sauðfjárbúskaps hér á landi, og síðustu áratugi hefur ræktunin miðað að því að minnka hlutfall fitu og auka vöðvahlutfall í lambaskrokkum. Fallprósenta íslenskra lamba var skoðuð yfir sjö ára tímabil. Gögnin sem notuð voru eru fengin úr skýrsluhaldi tilraunabúsins á Hesti, og innihalda upplýsingar um 2914 lömb frá árunum 2007 – 2013. Markmið þessa verkefnis var að skoða hvaða þættir hefðu mest áhrif á fallprósentu lamba við íslenskar aðstæður.&#xd;
Meðal fallprósenta lambanna í gagnasafninu var 40,5% með staðalfrávik upp á 2,2%. Skoðuð voru áhrif kyns, vaxtarhraða lamba, fjölda lamba sem gengu undir og fituflokks á fallprósentu. Allir þessir þættir höfðu marktæk áhrif á fallprósentuna og var R2 fyrir líkan með öllum þessum þáttum 0,24. Marktækur munur var á fallprósentu lamba eftir kyni. Meðalfallprósenta gimbra var 41,3% og staðalfrávik var 2,3% , meðalfallprósenta hrúta var 40,3% með staðalfrávik upp á 2,2%. Gimbrar voru því að meðaltali með 1% hærri fallprósentu saman borið við hrúta. Einnig var marktækur munur á fallprósentu lamba eftir því hversu mörg lömb gengu undir ánni. Hjá lömbum sem gegnu ein undir var meðalfallprósentan 41,3%, meðalfallprósenta lamba sem gengu tvö undir var 40,4% og hjá þeim lömbum sem gengu þrjú undir var meðalfallprósentan 40,6%.&#xd;
Vaxtarhraðai hafði áhrif á fallprósentu lambana, vaxtarhraði frá fæðingu og til sumarvigtunar hafði meiri áhrif á fallprósentuna (R2 = 0,26) miðað við vöxtinn frá sumarvigtun fram að haustvigtun (R2 = 0,25). Hraðari vöxtur á fyrri hluta vaxtarskeiðsins hafði í för með sér hærri fallprósentu á meðan hraðari vöxtur seinni hluta vaxtarskeiðsins dró úr fallprósentu. Heildarvaxtarhraði lambanna hafði ekki marktæk áhrif á fallprósentu ( p = 0,27).</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-06-07T11:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-06-07T11:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-06-07T11:20:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-06-07T11:20:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/41603</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Búvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sauðfé</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fallprósenta</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vöxtur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kjötgæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrifaþættir á fallprósentu hjá íslenskum lömbum</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Factors influencing the dressing-out percentage of Icelandic lambs</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>