<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T23:59:30Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/41618" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/41618</identifier><datestamp>2025-10-23T14:52:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ellisif Malmo bjarnadóttir 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helena Guttormsdóttir 1963-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið þessa verkefnis er að vekja athygli á mikilvægi gæða við sundlaugar og umhverfi þeirra. Fjórar sundlaugar á Suðurlandi eru skoðaðar sem tilviksrannsókn og þær metnar út frá þáttum sem snúa að aðgengi, gróðri og útsýni.&#xd;
Eftirfarandi sundlaugar voru skoðaðar: Skeiðalaug í Skeiða- og Gnúpverjahrepp, Reykholtslaug í Bláskógabyggð, sundlaugin Borg Í Grímsnesi og Laugaskarð í Hveragerði.&#xd;
Farið er yfir niðurstöður rannsókna um mikilvægi gróðurs, til andlegrar endurheimtar, þróun lauga, potta og tengingu við heita vatnið og hverasvæðin og rætt um sérstöðu sundmenningar Íslendinga og mikilvægi sundlaugarinnar í félagslegu samhengi til að stunda hreyfingu, slökun og félagsleg tengsl. Sýnd er tenging við fræði Jan Gehl og rýnt í athafnir fólks s.s. nauðsynlegar, valkvæðar og félagslegar. Þær athafnir hafa lykiláhrif á hvernig rými eru notuð. Þá spilar fagurfræði stóran þátt í aðdráttaraflinu.&#xd;
Að hafa upphitaðar laugar í öllum sveitum er í raun mjög sérstakt og sér íslenskt. Íslendingar alast upp í sundlaugum frá blautu barnsbeini og talað er um að sundlaugarnar hér á Íslandi gegni sama hlutverki og torg erlendis, svæðin þar sem fólk hittist. En umhverfi lauganna er eins misjafnt eins og þær eru margar. Ólík leiktæki eru í boði, en flestar hafa þær hinn vinsæla heita pott sem er eitt aðal aðdráttaraflið. Einnig er farið yfir grænu svæðin sem eru okkur svo mikilvæg og margar rannsóknir hafa sýnt tengsl á milli þeirra og geðheilbrigðis og vellíðunnar. Kannað verður hvernig staða þeirra er á völdum laugum.&#xd;
Athuganir sýndu (sbr. gátlistar) að aldur skipti ekki máli í mati þeirra þátta sem metnir voru. Elsta sundlaugin, Laugaskarð í Hveragerði var afgerandi best (varðandi þá þætti sem athugaðir voru), en Skeiðalaug kom síst út. Í gátlista má greina hverju var ábótavant. Í kjölfarið kemur höfundur með tillögur að viðbótum sem tengjast inn á fjölbreyttari upplifun, þægindi og bætt er inn lífrænum efnivið til að auka líkur á endurheimt, aukinni slökun og næringu sálarinnar.&#xd;
Athyglisvert er að enginn landslagsarkitekt kom að hönnun útisvæða við þessar sundlaugar og einnig má velta fyrir sér hvort mikill gróður í og við Laugaskarð, tengist langri garðyrkjumenningu á svæðinu.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-06-07T12:04:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-06-07T12:04:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-06-07T12:04:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-06-07T12:04:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/41618</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sundlaugar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hönnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Heitir pottar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Upplifun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Endurheimt</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fjölbreytni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lýðheilsa</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geðheilbrigði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Umgjörð sundlauga - Tækifæri til aukinna gæða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Swimming pools environment – Opportunities for increased quality</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>