<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T23:07:46Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/41629" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/41629</identifier><datestamp>2025-09-11T08:25:42Z</datestamp><setSpec>com_1946_35053</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35054</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Evlalía Kolbrún Ágústsdóttir 1998-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Brita Berglund 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Umhverfisbreytingar valda því að mannkynið þurfi að takast á við auknar áskoranir. Meðal þeirra lausna sem við vinnum að er náttúruvernd. Þegar unnið er að náttúruvernd og friðlýsingu svæða á Íslandi þarf að gera svokallaða stjórnunar- og verndaráætlun sem notuð er til að leiðbeina stjórnendum og hagsmunaaðilum um hvernig skuli haga friðlýsta svæðinu í framtíðinni. Mikil aukning hefur verið í því að notast við samráð við friðlýsingu svæða, sér í lagi þegar kemur að gerð stjórnunar- og verndaráætlunar svæðis, og með aðkomu fleiri aðila svo sem hagsmunaaðila myndast fjölbreytt og mikilvæg þekking, með samráði komast þessir aðilar að sameiginlegri niðurstöðu. Samráð er hins vegar ekki einfalt í framkvæmd og getur það misheppnast rækilega, því er mikilvægt að rannsaka samráðsferli. Í þessari rannsókn var notast við þátttökuathugun og hálf-opin viðtöl til að meta upplifun hagsmunaaðila af samráðsferli við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar Þjórsárdals. Upplifun hagsmunaaðila var heilt yfir góð og þótti viðmælendum rannsóknarinnar samráð afar mikilvægt. Þó var skilningur viðmælenda á því hvað samráð væri mjög víðtækur. Viðmælendur bentu á að samráðið þyrfti að vera yfirgripsmeira til þess að geta haft áhrif og að samráðið væri of stutt miðað við umfang verkefnisins. Fannst þá viðmælendum einn samráðsfundur á hagsmunaaðilahóp ekki nóg sem og að Umhverfisstofnun hefði mátt skipuleggja tímasetningar funda frekar í takt við lífshætti hagsmunaaðilahópa. Heimsfaraldurinn Covid-19 hafði mikil áhrif á fundarhöld og voru allir fundir nema einn haldnir á rafrænan máta. Væntingar til samráðsins fólust í góðum samskiptum sem yrðu til gagns og að gott utanumhald yrði á svæðinu t.d. í formi fræðslu og auknu eftirliti en margir viðmælenda óttuðust boð og bönn. Viðmælendur treystu sérfræðingum Umhverfisstofnunar til þess að takast á við þetta verkefni og fannst viðmælendum þau halda afar vel utan um fundina.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-06-07T13:06:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-06-07T13:06:33Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-06-07T13:06:34Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-06-07T13:06:32Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/41629</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Náttúru- og umhverfisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þjórsárdalur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Friðlýsing</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Náttúruvernd</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnunar- og verndaráætlun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hagsmunaaðilar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Upplifun hagsmunaaðila af samráðsferlinu við gerð stjórnunar- og verndaráætlunar Þjórsárdals</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Stakeholders experience of the consultation process in the preperation of the management plan for Þjórsárdalur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>