<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T16:56:34Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43023" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43023</identifier><datestamp>2022-11-28T10:16:55Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Birta Hörn Guðmundsdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Freydís Jóna Freysteinsdóttir 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsókn þessi er lokaverkefni til MA gráðu til starfsréttinda í félagsráðgjöf við Háskóla Íslands. Megin viðfangsefni hennar var að fanga reynsluheim fyrrum fósturbarna á því að takast á við fullorðinsár og upplifun þeirra á stuðningi og eftirliti barnaverndaryfirvalda á meðan á fóstri stóð og við lok þess. Gagnaöflun fór fram í október 2022 og notast var við eigindlega rannsóknaraðferð. Átta viðtöl voru tekin við þátttakendur sem höfðu það sameiginlegt að hafa verið ráðstafað í fóstur til átján ára aldurs. Enn fremur var beint sjónum að upplifun fyrrum fósturbarna á eigin lífi í dag í samhengi við tengsl og afstöðu þeirra á fósturráðstöfun barnaverndaryfirvalda. Vonir eru bundnar við að niðurstöður rannsóknarinnar gefi fagaðilum innsýn í veruleika fósturbarna og stuðli að áframhaldandi þróun á bættri þjónustu við fósturbörn. Niðurstöður benda til þess að verulegur skortur hafi verið á stuðningi og eftirliti barnaverndaryfirvalda á meðan á fóstri viðmælenda stóð, jafnvel þrátt fyrir sterk merki um vanlíðan fósturbarns og óviðunandi heimilisaðstæður á fósturheimili. Viðmælendur hefðu viljað betri tengsl við barnaverndarfulltrúa á fósturtímabili og í upphafi fullorðinsára. Reynsla þátttakenda af upphafi fullorðinsára kallaði á áframhaldandi stuðning því þeir höfðu takmarkað stuðningsnet í lok fósturs. Þá benda niðurstöður ótvírætt til þess að góð tengsl fósturbarnanna við einhvern aðila í fóstrinu og fram á fullorðinsár hefði jákvæð áhrif á líðan, öryggi, sjálfstæði og áframhaldandi velferð þeirra, þrátt fyrir sögu um áföll, ofbeldi eða önnur erfiði. Ekki er hægt að alhæfa út frá niðurstöðum rannsóknarinnar en niðurstöðurnar eru þó í samræmi við niðurstöður annarra sambærilegra rannsókna á reynslu barna í fóstri. Af niðurstöðunum má sjá að full ástæða er til þess að barnaverndaryfirvöld rýni í það hvernig megi bæta stuðning við börn í fóstri og hvort hægt sé að stuðla að betri afkomu þeirra með áframhaldandi stuðningi í upphafi fullorðinsára.&#xd;
Lykilorð: Fóstur, fósturbörn, félagsráðgjöf, barnavernd, seigla.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2022-11-28T10:16:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2022-11-28T10:16:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2022-11-28T10:16:55Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-11-27T11:39:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43023</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„Þótt búið sé að finna fósturheimili fyrir barn er ekki þar með sagt að barninu líði betur“. Upplifun fyrrum fósturbarna á því að takast á við fullorðinsár með tilliti til stuðnings og eftirlits barnaverndar í fóstri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>