<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-24T20:29:38Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43447" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43447</identifier><datestamp>2023-03-16T13:12:12Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Rakel Jónsdóttir 1987-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vörumerkjavirði er mikilvægt hugtak í viðskipta- og markaðsfræði í dag. Vörumerkjavirði getur meðal annars fært fyrirtækjum meiri hagnað, velgengni og árangursríkari markaðsaðgerðir. Vörumerkjavirði getur einnig auðveldað viðskiptavinum að túlka og vinna úr upplýsingum vörumerkja sem getur haft jákvæð áhrif á kaupákvörðun þeirra og auðveldað þeim valið þegar kemur að því að kaupa vöru eða velja ákveðið vörumerki. &#xd;
Fata- og textíliðnaðurinn er afar mengandi og neytendur eru margir hverjir meðvitaðir um þann umhverfisvanda sem hann veldur. Neytendur gera æ meiri kröfur um að fyrirtæki í fataiðnaði leggi áherslu á umhverfisvernd og sífellt fleiri fyrirtæki hafa tileinkað sér umhverfisvænar áherslur. &#xd;
Rannsóknarefni þessarar ritgerðar er að skoða hversu mikil áhrif umhverfisvæn skynjun viðskiptavina hefur á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja og hvort umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hafi áhrif á jákvætt viðhorf þeirra í garð íslenskra fatavörumerkja. Til að afmarka viðfangsefni rannsóknarinnar voru valin tvö íslensk fatavörumerki sem hafa skýra umhverfisstefnu; As We Grow og Farmers Market. Megindleg rannsókn var gerð í formi spurningakönnunar þar sem notast var við snjóbolta- og hentugleikaúrtak á samfélagsmiðlinum Facebook og í gegnum tölvupóst. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar leiddu í ljós að umhverfisvæn skynjun viðskiptavina á vörumerkjunum, sem hluti af umhverfisvænni ímynd þeirra, er mikilvæg breyta sem hefur áhrif á vörumerkjavirði þessara fatavörumerkja. Þá sýndu niðurstöður rannsóknarinnar að afstaða viðskiptavina til umhverfismála eða umhverfisvænt viðhorf viðskiptavina hefur sömuleiðis áhrif á vörumerkjavirði fatavörumerkjanna tveggja en áhrifin eru ekki eins mikil og af umhverfisvænni skynjun viðskiptavina eða ímynd vörumerkjanna sem umhverfisvænna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Verkefnið má afrita í einu eintaki til einkanota án sérstaks leyfis höfundar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-03-16T13:12:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-03-16T13:12:11Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-03-16T13:12:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-12-05T12:56:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43447</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Markaðsfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vörumerki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Neytendahegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Fataiðnaður</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfisáhrif</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif umhverfisvænnar skynjunar neytenda og umhverfisvæns viðhorfs þeirra á vörumerkjavirði íslenskra fatavörumerkja</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>