<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:09:10Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43448" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43448</identifier><datestamp>2023-03-31T11:47:34Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Viglín Óskarsdóttir 1966-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Þóra Þorgeirsdóttir 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Hlutverk fyrirtækja í samfélögum er að breytast. Hugmyndin um að fyrirtæki eigi fyrst og fremst að einbeita sér að hagnaði hluthafa er að víkja fyrir hugmyndum um samfélagslega ábyrgð. Miklar breytingar á vinnumarkaði, meðal annars auknar kröfur um jafnrétti öllum til handa, innflutningur vinnuafls og lagasetning hafa í för með sér nýjar áskoranir á stjórnendur sem verða að gæta réttlætis og sanngirni við ákvarðanir meðal annars um ráðningar og framgang starfsmanna. &#xd;
	Í þessari rannsókn er fjallað um birtingarmynd hlutdrægni (e. bias), áhrif hennar á ákvörðunartökur í fyrirtækjum og leiðir til þess að sporna við henni. Við framkvæmd rannsóknar var notuð eigindleg aðferð þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við 12 einstaklinga, sex konur og sex karla á mismunandi aldri, sem hafa komið að stjórnun, mannaforráðum, ráðningarferli og ráðningum bæði beint og óbeint. &#xd;
Niðurstöður rannsóknarinnar eru þríþættar. Í fyrsta lagi eru vísbendingar um að hlutdrægni viðgangist að einhverju leyti á íslenskum vinnustöðum og getur meðal annars haft áhrif á ráðningar og ákvarðanir um framgöngu starfsmanna. Þar má til dæmis nefna hlutdrægni vegna kyns, fötlunar, aldurs og fleira. Í öðru lagi gefa niðurstöður til kynna að hlutdrægni geti haft skaðlegar afleiðingar á fyrirtækjamenningu, fjölbreytileika og traust og dregið úr frammistöðu og frumkvæði starfsmanna. Í þriðja lagi benda niðurstöður rannsóknarinnar til þess að ekki sé hægt að sporna við hlutdrægni nema að efsta lag stjórnenda fyrirtækja fari á undan með fordæmi, leggi línur varðandi starfsmannastefnur og ferla og veiti skilvirka fræðslu til starfsmanna. Íslensk löggjöf hjálpar til við að sporna við hlutdrægni, ekki síst á opinbera vinnumarkaðnum en vísbendingar eru um að hún hafi ekki nægilega mikil áhrif á almenna markaðinn, að hluta til þar sem ekki verður neinum viðurlögum beitt þar.&#xd;
	Fræðilegt og hagnýtt gildi þessarar rannsóknar snýr að því að draga saman þekkingu um áhrifaþætti hlutdrægni sem birtast á íslenskum vinnustöðum. Sú þekking getur nýst stjórnendum til þess að átta sig á fyrirbærinu hlutdrægni og getur leitt til þess að teknar verði betri og upplýstari ákvarðanir meðal annars varðandi ráðningar og framgang starfsmanna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Óheimilt er að afrita verkið að hluta eða í heild á leyfis höfundar hverju sinni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-03-16T13:17:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-03-16T13:17:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-03-16T13:17:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-12-08T09:06:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43448</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnunarhættir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynjahlutfall</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jafnréttismál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hlutdrægni á vinnustöðum : birtingarmynd, áhrif og viðbrögð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>