<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-27T18:46:18Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43449" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43449</identifier><datestamp>2023-03-16T14:11:38Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2009</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Íris Bettý Alfreðsdóttir 1969-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Arney Einarsdóttir 1962-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Vaxandi umræða er um sveigjanleg, aldurstengd starfslok sem tengist meðal annars auknum lífslíkum fólks og álagi á opinber lífeyriskerfi. Vegna þessa hafa mörg lönd íhugað eða hækkað eftirlaunaaldur og innleitt lífeyrisbætur og um leið gert eldra fólki kleift að vinna lengur, en &#xd;
telja má að eldra starfsfólk sé vannýtt auðlind. Þessi rannsókn snýr að fyrrum starfsfólki Reykjavíkurborgar sem hætt hefur störfum vegna aldurs. Markmið rannsóknarinnar að ná fram upplifun þeirra og viðhorfi til eigin starfsloka og lífsgæðum í ljósi þeirra, og meta um leið &#xd;
hvort rétt sé að bjóða starfsfólki Reykjavíkurborgar upp á aukinn sveigjanleika varðandi aldurstengd starfslok. Tekin voru viðtöl við 12 þátttakendur og þau greind og túlkuð samkvæmtaðferðum fyrirbærafræði. Varðandi heildarupplifun þátttakenda skipta námskeið og/eða undirbúningur máli en flestir þeirra sóttu starfslokanámskeið á vegum Reykjavíkurborgar og hafa þess vegna jákvæða heildarupplifun af eigin starfslokum og lífsgæðum í ljósi þeirra. &#xd;
Helstu niðurstöður benda til þess að fyrrum starfsfólk Reykjavíkurborgar er sátt við starfslok og starfsumhverfi borgarinnar, þó starfslokin hafi haft áhrif á lífsgæði þeirra. Aldur var sá þáttur sem hafði helst áhrif á ákvörðunartökuferlið en flestir hættu við sjötugsaldur. Almennt töldu þátttakendur að þeir hefðu raunverulegt val og ákvörðunarvald varðandi sín starfslok. En niðurstöður benda þó til þess að styrkja megi eftirfylgni af hálfu borgarinnar í kjölfar starfsloka og að huga mætti betur að markvissara samtali til dæmis í formi formlegra starfslokasamtala til þess að bæta tengslin um leið.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="attachment" lang="is">Óheimilt er að afrita verkefnið að hluta eða í heild án leyfis höfunda/r hverju sinni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-03-16T14:11:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-03-16T14:11:36Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-03-16T14:11:37Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-05-06T19:48:08Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43449</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mannauðsstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aldurshópar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Starfslok</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„Ég hætti bara mjög sátt og með þá tilfinningu að ég hefði  unnið gott starf og farsælt“</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>