<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-04T23:56:01Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43464" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43464</identifier><datestamp>2023-03-16T16:29:58Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2001</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Linda Bjork Helgadottir 1971-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Einar Svansson 1958-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Viðfangsefni þessa lokaverkefnis er samfélagsmiðlar og þá sérstaklega Instagram og hvort sá miðill hafi áhrif á kauphegðun kvenna. Viðfangsefnið hefur af persónulegum ástæðum vakið áhuga höfundar um nokkurt skeið. Samfélagsmiðlar eru orðnir stór hluti af lífi fólks í dag hvort sem okkur líkar það betur eða verr og vísbendingar eru um að mikið og öflugt markaðsstarf fari fram á samfélagsmiðlum. Það getur fylgt því mikil þægindi fyrir neytendur að sjá upplýsingar og auglýsingar á auðveldan hátt á samfélagsmiðlum, kaupa síðan vöruna á internetinu og fá hana svo senda heim að dyrum. Rannsóknarspurningin sem lögð er „Hefur Instagram áhrif á kauphegðun kvenna?“ Í þessu verkefni verður leitast við að kanna áhrif samfélagsmiðla og þá sérstaklega Instagram á kauphegðun kvenna. Það er ósk höfundar að verkefnið gefi einhvern skilning á því hvort og þá hversu mikil áhrif samfélagsmiðlar hafa á kauphegðun kvenna og er markmið verkefnisins að fá innsýn og skilning á því efni. Samfélagsmiðillinn Instagram verður sérstaklega tekinn fyrir og skilgreindur í fræðilegri umfjöllun.&#xd;
Rannsóknin verður unnin sem fræðileg heimildaritgerð en einnig verður gerð eigindleg rannsóknarkönnun, tekin voru viðtöl við sex konur á aldrinum 20 – 59 ára og lagðar fyrir þær 25 spurningar sem tengjast viðfangsefninu. Lýstu þær upplifun sinni af Instagram, mögulegum áhrifum sem sá miðill hefur á kauphegðun þeirra og hvað það er sem hefur helst áhrif á þær á miðlunum.&#xd;
Niðurstöður eigindlegu rannsóknarinnar benda til að Instagram hafi þó nokkur áhrif á kauphegðun kvenna. Niðurstöðurnar sýndu að auglýsingar á Instagram og áhrifavaldar sem auglýsa vöru eða þjónustu hafa einna mest áhrif á kauphegðun viðmælenda. Slíkar auglýsingar fá konur oft til að hugsa um hlutinn eða þjónustuna, fara í verslunina til að skoða nánar eða kaupa á netinu. Ekki var marktækur munur á niðurstöðum eftir aldri viðmælenda.  &#xd;
Lykilorð: Samfélagsmiðlar, kauphegðun, áhrif, áhrifavaldar, Instagram, vörumerki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-03-16T16:29:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-03-16T16:29:56Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-03-16T16:29:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2022-11-19T15:56:35Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2022-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43464</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagshegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samfélagsáhrif</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samfélagsmiðlar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kauphegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Áhrif (sálfræði)</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Konur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Áhrif samfélagsmiðla á kauphegðun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>