<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T19:58:05Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43663" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43663</identifier><datestamp>2023-04-21T09:37:09Z</datestamp><setSpec>com_1946_2061</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2069</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hrafnhildur Hauksdóttir 1996-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Inga Jóna Ingimarsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ingibjörg Gunnþórsdóttir 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Hafsteinn Einarsson 1988-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Pétur Sigurður Gunnarsson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Inngangur: Langflestir sjúklingar með bráða hjartabilun þróa með sér langvinna hjartabilun sem skiptist í þrjár mismunandi svipgerðir eftir útfallsbroti: skert (HFrEF), vægt skert (HFmrEF) og varðveitt (HFpEF). Klínískar leiðbeiningar ráðleggja HFrEF sjúklingum beta blokkara (BB), saltstera/aldósterón viðtakablokkara (MRA), samflutningspróteins natríumglúkósa-2 hemla (SGLT2i), auk annars af eftirfarandi angíótensín breytihvatahemlum (ACEI): angíóntensín II/Neprilysin viðtakahemil (ARNI) eða angíótensín II viðtakablokka (ARB). Sami ávinningur er talinn ná til HFmrEF sjúklinga en ekki til HFpEF svipgerðarinnar.  &#xd;
Markmið: Rannsaka lyfjaávísanir vegna hjartabilunarinnlagna eftir svipgerðum og greina ástæður ófullnægjandi lyfjameðferðar. &#xd;
Aðferðir: Rannsóknarsnið var afturskyggn, lýsandi gagnarannsókn úr íslenska hjartabilunargagnagrunninum. Efniviður var allar bráðar hjartabilunarinnlagnir á hjartadeild Landspítalans frá janúar 2020 til júní 2022 (n=2142). Skoðað var hvort marktækur munur væri á lyfjameðferð eftir svipgerð hjartabilunar, sérstaklega milli HFrEF og HFmrEF. &#xd;
Niðurstöður: Ávísun  á ACEI, ARNI eða ARB var hjá 65% HFrEF, 54% HFmrEF og 40% HFpEF. Viðmiðunarskammtar náðust í 5–8% tilfella. Ávísun á BB var hjá 86% HFrEF, 85% HFmrEF og 75% HFpEF. Ávísun á MRA var  43% hjá HFrEF, 33% HFmrEF og 24% HFpEF innlögnum. Viðmiðunarskammtur fyrir BB og MRA náðist í 5% og 7% tilvika fyrir HFrEF, 12% og 13% fyrir HFmrEF og 14% og 18% fyrir HFpEF. SGLT2i var ávísað hjá 15% HFrEF, 8% HFmrEF og 5% HFpEF. Lágþrýstingur og langvinn nýrnabilun voru aðalástæður þess að ACEI/ARNI/ARB var ekki ávísað í hópi HFrEF og HFmrEF. Krónísk nýrnabilun var algengasta orsök þess að MRA var ekki ávísað, þar á eftir kom lágþrýstingur í hópi HFmrEF og HFrEF. Lágþrýstingur og hægtaktur reyndust hindra BB-meðferð óháð svipgerð. Einungis í 8% innlagna í hópi HFrEF var ávísað fjórfaldri lyfjameðferð samkvæmt klínískum leiðbeiningum ESC óháð viðmiðunarskömmtum og í undir 3% innlagna í öðrum hópum.  &#xd;
Umræður og ályktanir: Það er lágt hlutfall af innlögnum með hjartabilun sem er á réttri lyfjameðferð samkvæmt klínískum leiðbeiningum ESC við útskrift. Helstu þekktu orsakavaldar eru lágþrýstingur og skert nýrnastarfsemi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-04-21T09:37:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-04-21T09:37:07Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-04-21T09:37:09Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-04-20T14:47:46Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43663</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lyfjafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Ávísun lyfjameðferða eftir mismunandi svipgerðum hjartabilunar við útskrift á hjartadeild Landspítala: Eru íslenskir hjartabilunarsjúklingar að fá meðferð í samræmi við klínískar leiðbeiningar Evrópsku hjartalæknasamtakanna?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>