<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T09:01:56Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/43696" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/43696</identifier><datestamp>2023-06-22T14:53:12Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jóna Björg Guðmundsdóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Sigrún Harðardóttir 1956-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Það er sameiginlegt verkefni foreldra, kennara og samfélagsins í heild að búa börnin eins vel og unnt er undir framtíðina. Á þeim tíu árum sem börn verja alla jafna í grunnskóla fer fram mikill þroski og því mikilvægt að vel sé haldið utan um börnin í skólasamfélaginu. Það er margt sem þarf að huga að þegar kemur að farsæld barna og einkar mikilvægt að börn geti þrifist og dafnað innan skólakerfisins. Með lagabreytingum árið 2008 og innleiðingu skólastefnunnar um skóla án aðgreiningar var stigið stórt skref í átt að bættum aðbúnaði innan skóla þar sem áhersla var lögð á að pláss væri fyrir öll börn, burtséð frá þeirra aðstæðum eða persónulegum áskorunum. &#xd;
Aukið álag á störf kennara í kjölfar lagabreytinganna og innleiðingu skólastefnunnar um skóla án aðgreiningar hefur einkennt skólasamfélagið síðastliðin ár og á sama tíma hafa komið fram áhyggjur af stöðu barna innan þess. Rannsóknir hafa sýnt fram á að vandi barna á grunnskólaaldri sé að aukast og að fleiri börn á Íslandi séu að glíma við margvísleg vandamál og vanlíðan. Þá hefur bið eftir þjónustu einnig aukist mikið sem mikilvægt er að bregðast við. Með innleiðingu laga í þágu farsældar barna á að koma til móts við þennan vanda, með aukinni samþættingu í þjónustu við börn og þverfaglegri teymisvinnu og eiga lögin að stuðla að farsæld allra barna og tryggja réttindi þeirra.&#xd;
Markmið þessarar ritgerðar er að fjalla um þær lagabreytingar sem orðið hafa og hvers má vænta af nýjum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Leitað var svara við eftirfarandi rannsóknarspurningu: Hvað getur skólafélagsráðgjöf í grunnskólum lagt af mörkum í tengslum við markmið nýrra laga um samþætta þjónustu í þágu farsældar barna? Út frá helstu niðurstöðum má draga þá ályktun að félagsráðgjafar í skólum geti gegnt mikilvægu hlutverki þegar kemur að farsæld barna.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-04-26T15:54:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-04-26T15:54:12Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-04-26T15:54:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-04-26T15:01:47Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-04</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/43696</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Skólafélagsráðgjöf í grunnskólum: Farsæld barna til framtíðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>