<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-29T10:30:54Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4431" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4431</identifier><datestamp>2018-10-15T08:52:57Z</datestamp><setSpec>com_1946_2000</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2002</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sólveig Ólafsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Njörður Sigurjónsson 1974-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Ritgerðin er lokuð til 2011</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Rannsókn þessari er beint að Hólavallagarði, gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu í&#xd;
Reykjavík. Ljósi er varpað á uppruna hans og rætur, á valdabaráttu um garðinn, um&#xd;
hlutaðeigendur hans og hvers virði Hólavallagarður er í menningarsögulegu samhengi.&#xd;
Einnig er litið til framtíðar garðsins og settar fram tillögur að nokkrum áhersluþáttum,&#xd;
sem stjórnendur garðsins ættu að hafa í huga við stefnumótun hans.&#xd;
Byggt er á margvíslegum heimildum um garðinn sjálfan, aðra kirkjugarða og&#xd;
kirkjugarðamenningu ásamt greiningum og kenningum um menningararf og&#xd;
menningarminjar. Sérstaklega er horft til kenninga franska heimspekingsins og&#xd;
rithöfundarins Michels Foucault. Greiningartæki sem byggð eru á túlkun hans á&#xd;
fornminjafræði og sifjafræði draga fram valdaþræði og átakalínur sem liggja misdjúpt&#xd;
undir yfirborðinu. Þetta er sérstaklega gefandi greining á jafn flóknu fyrirbæri og&#xd;
kirkjugarði, eins og Foucault benti á sjálfur í greininni Um önnur rými sem hann samdi&#xd;
árið 1967. Þar segir hann m.a.:&#xd;
Kirkjugarðurinn er tvímælalaust annarlegur staður samanborið við venjuleg&#xd;
menningarrými; hann er engu að síður rými sem er bundið öllum staðsetningum&#xd;
miðborgarinnar, samfélagsins eða þorpsins í heild, því hver einasti einstaklingur,&#xd;
hver einasta fjölskylda, á ættingja í kirkjugarðinum (Foucault 2002, -b, 138).&#xd;
Í ljós kemur að Hólavallagarður er fyrst og fremst kirkjugarður og er sem slíkur&#xd;
ákaflega sterk táknmynd um vörn, mótþróa, andstöðu og jafnvel afneitun gegn ægivaldi&#xd;
dauðans. Eftir því sem honum er betur við haldið og hann hirtur því meir vörn veitir&#xd;
hann gegn hnignun, eyðileggingu og dauða. Táknmyndin hefur jafnvel enn víðari&#xd;
skírskotun í ljósi þess að Hólavallagarður, ásamt öðrum kirkjugörðum í Reykjavík&#xd;
hefur einstaka stjórnsýslulega stöðu utan valdakerfa ríkisins og stjórnkerfis&#xd;
Reykjavíkurborgar. Þessi sérstaka staða er ofangreindum yfirvöldum ekki alveg ljós og&#xd;
því hefur komið upp óvissa um forræði garðsins sem enn er ekki til lykta leidd.&#xd;
Menningarsögulegt gildi garðsins er ótvírætt, jafnt einstakir þættir hans og&#xd;
garðurinn í heild sinni. Því er mikilvægt að sundurgreina hann ekki um of því enda&#xd;
myndi það þýða að einn menningarsögulegur þáttur garðsins fái athygli á kostnað&#xd;
annars.&#xd;
Það á að vera í höndum stjórnar Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma að leiða&#xd;
stefnumótun um framtíð garðsins sem þjóðargersemi og forræði stjórnarinnar verður að vera tryggt og óumdeilt. Það verður best gert með því að auka virkni garðsins sem&#xd;
kirkjugarðs á um leið og menningarsögulegt gildi hans er haft í hávegum. Slík meðferð&#xd;
hefur hingað til ekki verið þáttur í stjórn og rekstri kirkjugarða á Íslandi en verður það í&#xd;
æ meiri mæli eftir því sem tímar líða.&#xd;
Umsýsla menningarminja eins og Hólavallagarðs krefst mikillar vinnu bæði á&#xd;
sviði hugmynda og framkvæmda. Í stað þess að auka álag á daglegan rekstur&#xd;
Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma er tilvalið að virkja grasrót áhugafólks um&#xd;
menningu og sögu Reykjavíkur, aðstandenda hinna látnu og þá sérstaklega hinna&#xd;
svokölluðu leiðishafa, sem eru ábyrgðarmenn einstakra grafreita í garðinum. Fjölga&#xd;
mun ört í þessum hópi þegar og ef reglur um jarðsetningu duftkera í garðinum verða&#xd;
rýmkaðar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-02-15T14:28:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-02-15T14:28:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-02-15T14:28:54Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4431</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsvísindi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarstjórnun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kirkjugarðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Menningarsaga</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hólavallagarður : gamli kirkjugarðurinn við Suðurgötu</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>