<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T09:26:15Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4435" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4435</identifier><datestamp>2018-10-15T13:56:33Z</datestamp><setSpec>com_1946_2062</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2077</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Björk Axelsdóttir 1942-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Höskuldur Þráinsson 1946-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þessi ritgerð er lokaverkefni til M.Paed.-prófs í íslensku við Hugvísindasvið Háskóla Íslands. Ritgerðin er byggð á rannsókn á fylgni milli frammistöðu nemenda í samræmdum prófum í íslensku í 4., 7. og 10. bekk grunnskólans. Niðurstöður prófa frá þremur árgöngum nemenda voru bornar saman, þ.e. nemenda sem luku samræmdu lokaprófi í íslensku úr 10. bekk vorin 2004, 2005 og 2006. Fræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar er sóttur í helstu strauma og stefnur sem verið hafa í íslenskukennslu á síðari árum, ekki síst í umræðu um gildi málfræðikennslu í grunnskóla. Rannsóknin skiptist í þrjá hluta. Í fyrsta hluta er rannsökuð fylgni milli frammistöðu nemenda í þeim fjórum námsþáttum sem prófaðir eru í íslensku á samræmdum prófum í grunnskóla. Í öðrum hluta er fylgni milli frammistöðu nemenda í þessum fjórum námsþáttum í 4. og 7. bekk borin saman við árangur þeirra í tilteknum málfræðiatriðum á samræmdu prófunum í 10. bekk. Í þriðja hluta eru markmið í Aðalnámskrá grunnskóla fyrir íslensku og námsefni í íslensku fyrir efri bekki grunnskólans skoðuð, ásamt völdum spurningum úr málfræði í 10. bekkjar prófunum. Þessi hluti rannsóknarinnar var gerður til að athuga hvort samræmi væri milli markmiða námskrár, námsefnis, kennslu og prófa. Fylgni milli frammistöðu nemenda í samræmdu prófi í 7. og 10. bekk er almennt sterkari en fylgnin milli frammistöðu sömu nemenda á 4. og 10. bekkjar prófinu en hæfni nemenda í ritun í 4. bekk virðist þó vera lykilþáttur í námsárangri þeirra í íslensku á efri stigum grunnskólans. Ekki er hægt að tala um mikla fylgni milli árangurs nemenda við að leysa einstakar spurningar á samræmdum prófum í 10. bekk og árangurs þeirra í glímunni við námsþættina fjóra, lestur, stafsetningu, málnotkun og ritun í 4. og 7. bekk. Þó kemur víða fram meðalfylgni. Í ljósi niðurstaðna úr rannsókninni eru gerðar tillögur að námsefni sem ætlað er að styrkja þá þætti sem mest forspárgildi hafa.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-02-15T16:31:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-02-15T16:31:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-02-15T16:31:53Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4435</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslensk málfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Grunnskólanemar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Samræmd próf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Námskrár</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íslenska</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Námsefni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Málfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Undirstöður. Fylgni milli árangurs í málfræði í 10. bekk og árangurs á íslenskuprófum í 4. og 7. bekk grunnskólans</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>