<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T03:23:59Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/44377" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/44377</identifier><datestamp>2023-08-10T09:45:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_6867</setSpec><setSpec>com_1946_6001</setSpec><setSpec>col_1946_6869</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn í Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hekla Sigrúnardóttir 1997-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Katrín Oddsdóttir 1977-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið ritgerðarinnar er að svara þeirri spurningu hvort kynrænn sjálfsákvörðunarréttur sé tryggður á Íslandi. Til þess að svara þeirri spurningu var fyrst afmarkað hvað fælist í kynrænum sjálfsákvörðunarrétti og hvernig hann hefði verið tryggður samkvæmt þeim þjóðréttarlegu skuldbindingum sem Ísland hefði undirgengist. Þá var rakin þróun réttarins í íslenskum lögum og fjallað um hvernig hann væri tryggður í núgildandi lögum og framkvæmd. Helstu niðurstöður voru þær að í kynrænum sjálfsákvörðunarrétti fælist í hið minnsta réttur einstaklingsins til þess að leiðrétta kynskráningu sína og nafn til samræmis við kynvitund og að slík leiðrétting væri ekki viðlögð neinum meiðandi skilyrðum, sér í lagi um sjúkdómsvæðingu. Þá að slíkur réttur næði jafnt til kynsegin fólks. Loks fælist í réttinum að tryggður væri aðgangur að trans heilbrigðisþjónustu. Fram kom að allir þessir þættir hefðu að meginstefnu verið tryggðir í íslenskum lögum í dag. Þeir nytu þá ennfremur stjórnarskrárverndar samkvæmt 71. og 76. gr. stjórnarskrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Fram kom að þó væru enn nokkrir annmarkar sem stæðu í vegi þess að kynræns sjálfsákvörðunarréttar yrði notið til fulls. Lutu þeir meðal annars að takmörkunum á leiðréttingu kynskráningar, hefði hún þegar verið leiðrétt einu sinni. Þá takmörkunum á aðgang að heilbrigðisþjónustu, meðal annars langan biðtíma, takmörkunum á kostnaðarþátttöku sjúkratrygginga og að réttur til launa í veikindaforföllum í þeim tilfellum sem trans heilbrigðisþjónusta er sótt væri ekki tryggður. Eftir atvikum voru lagðar fram tillögur að úrbótum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-05-22T13:13:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-05-22T13:13:14Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-05-22T13:13:15Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-05-14T12:34:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/44377</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Meistaraprófsritgerðir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sjálfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Réttarstaða</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Kynvitund</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Kynrænn sjálfsákvörðunarréttur : nýtur kynrænn sjálfsákvörðunarréttur trans fólks lagaverndar á  Íslandi?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>