<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-02T04:40:40Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/44808" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/44808</identifier><datestamp>2025-09-03T14:36:18Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Pétur Guðmundsson 1995-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Samaneh Sadat Nickayin 1984-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Anna Kristín Guðmundsdóttir 1991-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Örar tæknibreytingar síðustu alda í kjölfar iðnvæðingar hafa haft varanleg áhrif á þróun borgarsamfélaga. Þróun og framgangur sjávarútvegs var að mörgu leyti driffjöður í þróun samfélags á Íslandi á síðustu öld. Með framvindu iðnvæðingar á heimsvísu síðastliðna áratugi - sérstaklega á Vesturlöndum, hefur hefðbundinn iðnaður og tengd athafnastarfsemi&#xd;
innan þéttbýla víða skerst eða lagst niður. Því standa nú víða auð&#xd;
athafnarsvæði eftir innan bæja og borga. Með því að svæðin verða bæði&#xd;
auð og yfirgefin, myndast hin ýmsu vandamál. Svæðin eru berskjölduð&#xd;
gegn hækkandi sjávarmáli og auknu regni, ásamt því sem þau stuðla&#xd;
ekki að auknum útivistar- og dvalartækifærum fyrir íbúa nærumhverfa&#xd;
þessara svæða. Að sama skapi fara efnahagsleg tækifæri forgörðum&#xd;
fyrir nærsamfélagið að svæði sem annars gætu verið í rekstri séu ónýtt.&#xd;
Þessum svæðum þarf að vera fundin endurnýjun og gefin ný hlutverk í&#xd;
takt við breytt samfélög.&#xd;
Í þessari ritgerð er Gránufélagsreiturinn á Akureyri tekinn til skoðunar með því að takmarki að þróa hönnuartillögu fyrir reitinn. Hönnunartillagan er byggð á fræðilegri samantekt ásamt greiningarvinnu fyrir reitinn sem eru kynnt hér í ritgerðinni. Svæðið er eitt helsta athafnasvæði Akureyrar, og hefur umræða vaxið síðastliðin ár um nauðsyn þess að endurnýja svæðið. Unnið var rammaskipulag fyrir Oddeyri meðfram&#xd;
núgildandi aðalskipulagi Akureyrar - og er það því útgangspunktur fyrir&#xd;
alla uppbyggingu á austanverðri Oddeyri. Gránufélagsreiturinn hefur&#xd;
sömuleiðis verið í deiglunni síðastliðin ár, ýmist vegna sjávarflóða eða&#xd;
stórkarlalegra hugmynda um uppbyggingu á reitnum. Að sama skapi er&#xd;
byggðin á Oddeyri hönnuð eftir hefðbundnu 19. byggðarmynstri, og því&#xd;
eitt elsta hverfi Akureyrar. Sjónarmið um staðaranda, hverfisverndun og&#xd;
iðnaðartengda arfleifð svæðisins eru því mikilvægar og vert að taka inn&#xd;
í alla umhverfismótun á Gránufélagsreitnum.&#xd;
Framtíðaruppbyggingu á austanverðri Oddeyri hefur því verið fundin&#xd;
farvegur í gegnum rammaskipulag fyrir hverfið frá árinu 2018. Þar er&#xd;
Gránufélagsreitnum lýst sem þróunarreit með blandaða íbúðarbyggð ásamt&#xd;
þjónustu og atvinnustarfsemi.&#xd;
Að þessu sögðu standa bæjaryfirvöld í þrátefli við það hver og hvernig hefja skuli og standa að uppbyggingu á svæðinu. Færsla og flutningur eftirstandandi atvinnustarfsemis og athafnasvæðis af svæðinu er enn óviss, þar sem þessum svæðum hefur ekki enn verið fundinn staður til frambúðar. Þetta hamlar fyrir uppbyggingu á svæðinu til skemmri tíma. Sjónarmið verktaka í þessari uppbyggingu vega sömuleiðis þungt, þar sem minni verkefni eru ekki metin fýsileg til framkvæmda. Það ríkir því enn óvissa hvernig og hvenær þessi svæðistengda uppbygging muni hefjast.&#xd;
Akureyrarbær sem gamall iðnaðarbær gæti nýtt sér í auknum mæli frumkvæðið sem auknum skilningi hérlendis í því að nýta í auknum mæli iðnaðartengda þéttbýlisarfleifð í umhverfismótun eldri athafnarsvæða. Sem dæmi um þetta má nefna Listagilið á Akureyri sem í dag hýsir miðju listar og menningar í bænum. Slík umbreytingarverkefni eru víðast stutt á veg komin hérlendis en Akureyri hefur með þessu áður sýnt að umbreyting þessara svæða til nýrra nota er möguleg. Yfirfærslugildi verkefnins er því bundið í því að vekja athygli á þessum svæðum víðar á Íslandi ásamt því sem að svæðisgreiningar á reitnum gætu veitt innblástur í öðrum sambærilegum verkefnum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-06-07T15:49:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-06-07T15:49:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-06-07T15:49:27Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-06-07T15:49:26Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/44808</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Akureyri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Athafnarsvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Endurnýjun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hafnarsvæði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Oddeyri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Rammaskipulag</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Vatnsvarnir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Staðarandi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gránufélagsreitur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="en">Post-Industrial Landscapes</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Endurnýjun athafnasvæða á Akureyri. Hönnunartillaga fyrir Gránufélagsreitinn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>