<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-26T12:50:47Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/44810" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/44810</identifier><datestamp>2025-10-23T14:38:52Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Anna Berta Heimisdóttir 2000-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Halla Marta Árnadóttir 1994-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Helena Guttormsdóttir 1963-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Jón Arnar Sverrisson 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Loftslagsbreytingar og minni líffræðilegur fjölbreytileiki er vandi sem&#xd;
allur heimurinn stendur frammi fyrir. Hlýnun jarðar, náttúruhamfarir&#xd;
og flóð innan þéttbýlis eru dæmi um áskoranir sem aukist hafa&#xd;
verulega á undanförnum árum. Náttúrumiðaðar lausnir eru ein leið til&#xd;
að takast á við þessi vandamál. Þær eru aðgerðir sem vernda, stjórna&#xd;
og endurheimta náttúruleg og breytt vistkerfi á sjálfbæran hátt.&#xd;
Ávinningurinn er margvíslegur og á ekki aðeins við um líffræðilegan&#xd;
fjölbreytileika og loftslagsmál, heldur styrkja náttúrumiðaðar lausnir&#xd;
efnahags- og heilbrigðismál og stuðla að velferð manna.&#xd;
Ein gerð af náttúrumiðuðum lausnum eru blágrænar ofanvatnslausnir.&#xd;
Þær takast á við áskoranir sem snúa að ofanvatni (regnvatni)&#xd;
innan þéttbýlis. Þétting byggðar hefur leitt til þess að meira er um&#xd;
ógegndræp yfirborð sem geta valdið ofanflóðum og ofsaálagi á&#xd;
fráveitukerfi. Blágrænar ofanvatnslausnir meðhöndla ofanvatn á&#xd;
náttúrulegan hátt og geta dregið úr álagi á fráveitukerfum, stuðlað að&#xd;
lýðheilsu íbúa og aukið líffræðilegan fjölbreytileika. Um allan heim&#xd;
hefur innleiðing blágrænna ofanvatnslausna farið vaxandi og&#xd;
árangurinn verið góður. Þær hafa verið innleiddar í örfáum bæjum á&#xd;
Íslandi en aukning á þeim er nauðsynleg þar sem stefna um að þétta&#xd;
byggð er allsráðandi.&#xd;
Í þessu verkefni er fjallað um náttúrumiðaðar- og blágrænar&#xd;
lausnir, skoðuð eru erlend fordæmi og hvernig best er að innleiða&#xd;
blágrænar ofanvatnslausnir í nýrri íbúðabyggð. Gerð er greining á&#xd;
Skógarhverfi á Akranesi, sem er athugunarsvæði þessa verkefnis, til&#xd;
að koma auga á sérkenni svæðisins og í kjölfarið eru hönnunarforsendur&#xd;
lagðar fram. Hönnunartillaga að innleiðingu blágrænna&#xd;
ofanvatnslausna í hverfinu er sett fram myndrænan hátt, með farsæla&#xd;
innleiðingu að markmiði. Niðurstöður verkefnisins sýna hvernig hægt&#xd;
er að innleiða blágrænar ofanvatnslausnir í Skógarhverfi og í leiðinni&#xd;
hvernig þær geta aukið gæði umhverfisins, aukið líffræðilegan&#xd;
fjölbreytileika, stuðlað að bættri lýðheilsu íbúa og dregið úr álagi á&#xd;
fráveitukerfi.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-06-07T16:03:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-06-07T16:03:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-06-07T16:03:59Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-06-07T16:03:57Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/44810</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Náttúrumiðaðar lausnir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Blágrænar ofanvatnslausnir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Íbúðahverfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Líffræðileg fjölbreytni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Skógarhverfi</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Mengun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Þétting byggðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Innleiðing blágrænna ofanvatnslausna í nýrri íbúðabyggð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>