<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-28T03:54:10Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/44841" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/44841</identifier><datestamp>2025-09-11T15:55:19Z</datestamp><setSpec>com_1946_35059</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_35060</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Jens Davíð Robertsson 1998-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Páll Jakob Líndal 1973-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Gísli Rafn Guðmundsson 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Tilvist göngugatna á Íslandi hefur verið töluvert deilumál í stjórnmálum og á götum borgarinnar í 50 ár eða síðan Austurstræti var fyrst gert að göngugötu árið 1973. Ásökuðu kaupmenn stjórnvöld þá um skort á samráði og útrýmingu verslunariðnaðar í miðborg Reykjavíkur. Nú til dags hefur umræðan lítið breyst og velta má fyrir sér hvort einhver þróun hafi átt sér stað eða hvort hún snúist einungis í hringi. Þrátt fyrir yfirlýsingar rekstraraðila og annarra mótmælenda göngugatna um skaðleg áhrif þeirra, þá hafa íbúar höfuðborgarsvæðisins verið mjög jákvæðir gagnvart tilvist þeirra. Rannsóknir hafa sýnt að göngugötur geta bætt andlega og líkamlega heilsu, minnkað mengun, hvatt til félagslegra samskipta, aukið öryggi og styrkt verslunarrekstur. Megin markmið þessa verkefnis er því að ákvarða hverjar eru helstu hindranir áframhaldandi þróunar göngugatna, auk þess að meta gönguvænleika göngugatna í miðborg Reykjavíkur og aðgengi ólíkra hópa.&#xd;
Niðurstöður undirstrikuðu að aðlaðandi göturými sem stuðla að sálfræðilegri endurheimt eru mikilvæg, eigi göturnar að teljast gönguvænlegt umhverfi. Því miður er núverandi göngugötusvæði Reykjavíkur mjög ábótavant, en verkefni er í gangi sem stefnir að endurgerð sumra göngugatna og eru vonir bundnar við að það muni auka gönguvænleika þeirra. Þá telur rannsakandi að helstu orsakir tafa í áframhaldandi þróun göngugatna og auknum gönguvænleika miðborgarinnar sé langdregið ósætti milli talsmanna göngugatna og rekstraraðila miðborgarinnar og annarra hagsmunaaðila sem veldur miklum töfum í framgangi göngugötumála. Auk þess hefur mjög ábótavant aðgengi aldraðra og hreyfihamlaðra að miðborginni haft mikil áhrif, en þeir telja margir að miðborgin sé ekki lengur fyrir sig. Telur rannsakandi því brýnt að bæta aðgengi allra hópa samfélagsins svo hægt sé að stuðla að jákvæðara og fjölbreyttara mannlífi á göngugötum miðborgarinnar.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-06-08T10:06:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-06-08T10:06:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-06-08T10:06:23Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-06-08T10:06:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-05</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/44841</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Landslagsarkitektúr</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Aðgengi almennings</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Göngugötur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Gönguvænleiki</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Reykjavík</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnmál</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfissálfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Öryggi almennings</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Göngugötur í miðborg Reykjavíkur. Áhrif þeirra og framþróun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>