<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T06:21:17Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4548" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4548</identifier><datestamp>2018-10-12T10:33:29Z</datestamp><setSpec>com_1946_4482</setSpec><setSpec>com_1946_3515</setSpec><setSpec>col_1946_4484</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Landbúnaðarháskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ásta Kristín Guðmundsdóttir 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Stefán Gíslason 1957-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Markmið verkefnisins var að kanna með hvaða hætti Hvanneyri gæti orðið fyrirmyndarsamfélag í úrgangsmálum. Kannað var m.a. hversu mikill heimilisúrgangur væri fluttur frá Hvanneyri til urðunar, hver væri þátttaka íbúa í flokkun endurvinnanlegs úrgangs, hversu miklu væri skilað til jarðgerðarinnar Moldu á Hvanneyri og hvernig viðhorfum íbúanna til flokkunar og úrgangsmála á Hvanneyri væri háttað. Svörin við þessum&#xd;
spurningum voru síðan notuð til að leggja fram aðgerðaráætlun. Í verkefninu var stuðst við gögn frá Gámaþjónustu Vesturlands hf. ásamt sérstakri vigtun sem framkvæmd var á Hvanneyri. Úrgangur frá heimilum Hvanneyrar reyndist vera rúm 78 tonn&#xd;
á ári. Af þessu magni voru um 11 tonn flokkuð, þar af tæp 2,8 tonn til jarðgerðar og rúm 8 tonn til annarrar endurvinnslu. Um 67 tonn eða 86% heimilisúrgangs á Hvanneyri er urðað. Árlega falla til 63 tonn af endurvinnanlegum úrgangi á heimilum Hvanneyrar, þar af henta 20 tonn til jarðgerðar. Í skoðanakönnun um þátttöku íbúa í flokkun úrgangs og viðhorf til endurvinnslu sögðust 75% flokka einhvern endurvinnanlegan úrgang. Nokkur áhugi er fyrir hendi að byrja að flokka og telja flestir svarendur að endurvinnslugámar eða tunnur auki&#xd;
þátttöku íbúanna í flokkun heimilisúrgangs. Tæpum 75% svarenda fannst illa staðið að kynningu á jarðgerðinni Moldu, og vitneskju um söfnun og jarðgerð lífræns úrgangs reyndist ábótavant. Lagt er til að starfshópur undir forystu LbhÍ vinni að undirbúningi og kynningu nýrra aðgerða í úrgangsmálum. Enginn lífrænn né endurvinnanlegur úrgangur verði fluttur til urðunar frá Hvanneyri. Allur úrgangur sem til þess er fallinn verði endurnýttur innan svæðisins, öðrum verði safnað og komið í verð. Jarðgerðin verði efld og stækkuð.&#xd;
Grenndargámum fyrir annan endurvinnanlegan úrgang verði fundinn staður miðsvæðis á Hvanneyri. Félagasamtök verði í forsvari fyrir endurvinnslugáma, annist eftirlit og losun, enda fái þau ágóðann af sölu úrgangsins. Þörf er á nánari rannsóknum og vinnu tengdri úrgangsmálum á Hvanneyri, t.d. að meta magn alls úrgangs frá Hvanneyri, jafnt frá heimilum sem fyrirtækjum. Vinna þarf nánari útfærslu á hinum nýju aðgerðum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-03-16T11:57:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-03-16T11:57:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-03-16T11:57:49Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4548</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Umhverfisfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Hvanneyri</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Sorp</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Flokkun</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Jarðgerð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Endurvinnsla</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Hvanneyri - fyrirmyndarsamfélag í úrgangsmálum?</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>