<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-11-27T10:27:48Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4583" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4583</identifier><datestamp>2018-10-15T09:32:27Z</datestamp><setSpec>com_1946_2007</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2008</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Ísak Gunnarsson 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Kári Joensen 1979-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" lang="is">Ritgerðin er lokuð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Miklar breytingar hafa átt sér stað í íslensku efnahagslífi frá bankahruninu árið 2008. Íslensk fyrirtæki í flestum atvinnugreinum finna að öllum líkindum fyrir þessum breyttu aðstæðum og þá sérstaklega þau er starfa við innflutning. Verðbólga hefur verið há á Íslandi síðustu ár og hefur verðlag verið hærra á íslenskum dagvörumarkaði en verð á dagvörumörkuðum samanburðarlanda. Verðlag innfluttra vara hefur hækkað til muna í kjölfar kreppu sem hefur leitt til þess að neytendahegðun almennings hefur breyst. Gengisbreytingar skila sér ekki beint út í almennt verðlag ef litið er til skemmri tíma, en hinsvegar skila þær sér hraðar í innflutningsverð en neysluverð. Aðferðin sem notuð er við rannsóknina er í senn eigindleg og meigindleg. Lagt var upp með að skýra lykilhugtök sem viðkoma hinum íslenska markaði og hvernig verðlagningu er háttað á Íslandi. Til þess að dýpka skilning á viðfangsefninu var stuðst við eigindlegar heimildir sem aflað var með djúpviðtölum við sölu- og innkaupastjóra íslenskra innflutningsfyrirtækja. Ritgerðin skýrir markaðsaðstæður í litlum hagkerfum eins þeim íslenska og hvernig áhrif kreppa hefur á verðmyndun. Verðlagning innflutningsfyrirtækja hefur tekið ákveðnum breytingum. Hækkun fjármagnskostnaðar, stað- og fyrirframgreiðslur pantana, aukinn og aukin fjárbinding í birgðum gera það að verkum að álagning hefur aukist á dagvörum. Fyrirtæki eru meira á varðbergi varðandi gengisþróun og endurskoða verð sín oftar en áður. Þetta hefur í för með sér að verðbreytingar eru tíðari en fyrir bankahrun. Gengisleki í innflutningsverð hefur því að öllum líkindum aukist í kjölfar veikingar krónunnar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-03-23T14:19:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-03-23T14:19:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-03-23T14:19:22Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4583</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptafræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Innflutningur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Verðlagning</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Efnahagskreppur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Verðlagning íslenskra innflutningsfyrirtækja á dagvörumarkaði og áhrif kreppu</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" qualifier="alternative" lang="is">Price-setting behavior of imports during a recession</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>