<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T11:06:33Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/4594" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/4594</identifier><datestamp>2018-10-15T08:56:23Z</datestamp><setSpec>com_1946_2003</setSpec><setSpec>com_1946_1992</setSpec><setSpec>col_1946_2004</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskólinn á Bifröst</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Sigrún Rósa Björnsdóttir 1970-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Þann 7. október 2008, tóku gildi lög nr. 125/2008, um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði ofl. Lögin voru sett þegar þegar fyrirsjáanlegt var að íslensku bankarnir Glitnir, Landsbanki og Kaupþing kæmu til með að falla og hafa í daglegu talið verið kölluð neyðarlögin. Lögin voru umdeild og fannst höfundi áhugavert að reyna að varpa ljósi á lögfræðilega merkingu hugtaksins stjórnskipulegur neyðarréttur. Í því samhengi spyr höfundur hvort neyðarlögin fari á einhvern hátt þannig gegn stjórnarskrá að þau þarfnist réttlætingar og ef svo er hvers konar neyðarréttarleg sjónarmið geti réttlætt neyðarlögin. Meginreglan um neyðarrétt, er grundvölluð á því að við ákveðnar aðstæður verði nauðsyn ríkari eða rétthærri lögum. Stjórnskipulegan neyðarrétt má skilgreina þannig að neyðartilfelli geri þær aðgerðir ríkisvaldsins sem venjulega væru stjórnarskrárbrot, réttlætanlegar vegna neyðarréttar.&#xd;
Þau efnisatriði sem orka helst tvímælis í neyðarlögunum með hliðsjón af stjórnarskrá snúa einkum að mannréttindaákvæðum hennar. Þegar stjórnvöld taka íþyngjandi ákvarðanir sem snúa að stjórnarskrárvernduðum mannréttindum, þarf sérstaklega að gæta meðalhófsreglunnar og sýna fram á nauðsyn takmörkunarinnar. Af því leiðir að setji löggjafinn lög sem hafi fyrrgreind áhrif þá hafi ekki aðrir og vægari kostir verið í stöðunni til að vinna bug á því ástandi sem komið er upp. Hægt er að færa rök fyrir því að lög nr. 125/2008 hafi getað haft áhrif á stjórnarskrárvarin réttindi. Hins vegar er hægt að réttlæta lagasetninguna með því að efnahagslegur neyðarréttur hafi verið til staðar þegar lögin voru sett.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned" lang="is">2010-03-24T13:09:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available" lang="is">2010-03-24T13:09:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2010-03-24T13:09:43Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2009-12</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/4594</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Viðskiptalögfræði</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnskipunarréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Stjórnarskrá Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Um stjórnskipulegan neyðarrétt : fara lög nr. 125/2008 á einhvern hátt gegn stjórnarskrá? : ef svo er hvers konar neyðarréttarleg sjónarmið geta réttlætt þau? : stjórnskipunarréttur</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" qualifier="alternative" lang="is">On constitutional crisis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>