<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-09-27T03:20:23Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/45953" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/45953</identifier><datestamp>2023-12-28T09:41:01Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2065</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Rúna Sif Harðardóttir 1986-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Steinunn Hrafnsdóttir 1964-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Lyfjameðferð við ópíóíðafíkn felst í að meðhöndla vímuefnavanda ópíóíðanotenda og fyrrum notenda með því að ávísa skaðlausari vímuefnum. Rannsóknir hafa sýnt að slík lyfjameðferð getur hvatt notendur til að nota minna af ópíóíðum, fækkað andlátum tengdum ofskömmtunum og eitrunum, HIV smitum, áhættuhegðun, afbrotum og minnkað fjárhagslegan vanda notenda. Í þessari rannsókn var sjónum beint að viðhorfum skjólstæðinga í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ gagnvart meðferðinni sem þeir hlutu. Um er að ræða blandaða rannsókn sem samanstendur af eigindlegum og megindlegum hluta. Í megindlegu rannsókninni svöruðu 59 þátttakendur spurningalista um viðhorf sín gagnvart meðferðinni. Eigindlega rannsóknin samanstóð af fjórum viðtölum við skjólstæðinga í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ. Notast var við viðtalsvísi til að viðhalda flæði viðtalsins. Þátttakendur fengu einnig tækifæri til að koma með ábendingar um hvaða breytingar þeir vildu sjá á meðferðinni. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að yfir heildina voru þátttakendur mjög ánægðir með þá þjónustu sem meðferðin bauð upp á. Þeir voru sáttir við samskipti sín við starfsfólk SÁÁ og litu á meðferðina sem bjargvætt í lífi sínu. Í rannsókninni komu einnig í ljós ákveðnir gallar á meðferðinni, svo sem skortur á upplýsingaflæði á milli skjólstæðinga og fagaðila og óheppileg uppröðun tímabókana, sem vert er að skoða í áframhaldandi vinnu með þessum skjólstæðingum.</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2023-11-27T08:33:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2023-11-27T08:33:19Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2023-11-27T08:33:20Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2023-11-26T16:14:58Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2023-11</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/45953</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Ópíóðar</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Lyfjameðferð</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">„..upp frá því byrjaði líf mitt að snúast við.“ Viðhorf skjólstæðinga í lyfjameðferð við ópíóíðafíkn hjá SÁÁ gagnvart meðferð sinni</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Master's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>