<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?><?xml-stylesheet type="text/xsl" href="static/style.xsl"?><OAI-PMH xmlns="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.openarchives.org/OAI/2.0/ http://www.openarchives.org/OAI/2.0/OAI-PMH.xsd"><responseDate>2026-10-03T18:08:28Z</responseDate><request verb="GetRecord" identifier="oai:skemman.is:1946/46423" metadataPrefix="dim">https://skemman.is/oai/request</request><GetRecord><record><header><identifier>oai:skemman.is:1946/46423</identifier><datestamp>2024-04-12T13:58:18Z</datestamp><setSpec>com_1946_2059</setSpec><setSpec>com_1946_2057</setSpec><setSpec>col_1946_2066</setSpec></header><metadata><dim:dim xmlns:dim="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim" xmlns:doc="http://www.lyncode.com/xoai" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance" xsi:schemaLocation="http://www.dspace.org/xmlns/dspace/dim http://www.dspace.org/schema/dim.xsd">
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" lang="is">Háskóli Íslands</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="contributor" qualifier="author">Hildur Margrét Arnbjargardóttir 1995-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="advisor">Erla Björg Sigurðardóttir 1959-</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="description" qualifier="abstract" lang="is">Í þessari heimildaritgerð safnaði höfundur gögnum um rannsóknir og kenningar úr ritrýndum fræðilegum greinum og fagbókum og með upplýsingaviðtölum við barnasálfræðing hjá SÁÁ og starfsmann Okkar heims. Samkvæmt greiningarviðmiðum DSM-5 og ICD-11 er vímuefnaröskun sjúkdómur sem hefur áhrif á heilastarfsemi einstaklings og hegðunarmynstur, sem getur valdið alvarlegum skaða. Geðraskanir geta verið alvarlegar og eru taldar vera fjölþættur vandi sem tengist einstaklingsbundnum, félagslegum og klínískum þáttum. Rannsóknir hafa sýnt að börn sem alast upp hjá foreldri með vímuefnaröskun og/eða geðrænan vanda taka oft að sér hlutverk umönnunaraðila og eru í töluverðri áhættu hvað það varðar að þróa með sér sambærileg veikindi og foreldrar þeirra. Tilgangur þessarar ritgerðar er að skoða hverjar geta verið afleiðingar þess fyrir börn að alast upp hjá foreldrum með vímuefnaröskun eða geðrænan vanda. Niðurstöður rannsókna sýna að vímuefnaröskun og/eða geðröskun sem einstaklingur glímir við hefur ekki einungis áhrif á hann heldur alla innan fjölskyldunnar. Samkvæmt rannsóknum og ummælum fagfólks upplifa börn sem eiga foreldra í þessari stöðu oft skömm og finnst erfitt að tjá sig um heimilisaðstæður sínar og líðan. Kenningar sýna mikilvægi góðra tengsla milli barna og foreldra en þegar foreldri glímir við vímuefnavanda eða geðrænan vanda getur reynst þeim erfitt að veita börnum þann stuðning sem þau þurfa, sem getur haft neikvæðar afleiðingar á börnin til lengri tíma. Í dag eru það einungis SÁÁ og Okkar heimur sem veita börnum undir 12 ára aldri, sem búa við geðraskanir og vímuefnaröskun foreldra, ráðgjöf og stuðning. Samkvæmt nýlegum lögum um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna, nr. 86 frá 2021, er lögð áhersla á að börn og foreldrar eigi rétt á viðeigandi aðstoð. Lögin leggja þær skyldur á opinbera aðila að greina vanda barna og sjá þeim fyrir viðeigandi þjónustu.&#xd;
Félagsráðgjöf&#xd;
Vímuefnaröskun&#xd;
Geðröskun&#xd;
Börn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="accessioned">2024-04-12T13:58:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="available">2024-04-12T13:58:17Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="issued">2024-04-12T13:58:18Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="submitted">2024-04-12T12:42:51Z</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="date" qualifier="published">2024-06</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="identifier" qualifier="uri">http://hdl.handle.net/1946/46423</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="language" qualifier="iso">is</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Félagsráðgjöf</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Geðraskanir</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="subject" lang="is">Börn</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="is">Upplifun barna af því að alast upp hjá foreldri með vímuefnaröskun eða geðröskun og afleiðingar. Okkar heimur og SÁÁ</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="title" lang="en">Children's experience of growing up with a parent with a substance abuse or mental disorder and the consequences. Okkar heimur og SÁÁ</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type">Thesis</dim:field>
<dim:field mdschema="dc" element="type" qualifier="degree">Bachelor's</dim:field>
</dim:dim></metadata></record></GetRecord></OAI-PMH>